Fara í efni

Fagháskólanám í leikskólafræðum

Keilir og Háskóli Íslands bjóða í haust upp á fagháskólanám í leikskólafræðum fyrir starfsfólk leikskóla á Suðurnesjum. Um er að ræða starfstengt og hagnýtt nám á háskólastigi. 

Námið er sett upp sem 60 ECTS einingar og skilgreint sem nám með vinnu og er áætlað að það taki tvö ár. Stefnt er að því að námið hefjist 1. september næstkomandi og fara umsóknir fram á vef Háskóla Íslands. Umsóknarfrestur um nám á haustönn er til 22. júní.

Með fagháskólanáminu vilja samstarfsaðilar meðal annars stuðla að:

  • öflugu námi í leikskólafræðum á Suðurnesjum
  • eflingu menntunar innan leikskólanna á svæðinu
  • fleiri möguleikum starfsfólks leikskóla til starfsþróunar
  • því að sameina styrkleika formlegrar menntunar og þeirrar reynslu sem starfsfólk leikskóla býr yfir
  • samlegðaráhrifum sem verða til þegar Keilir, Háskóli Íslands, sveitarfélög og leikskólar á Suðurnesjum taka höndum saman. 

Fyrirkomulag og nánari útfærsla

Um er að ræða hagnýtt, atvinnutengt nám á háskólastigi sem lýkur með veitingu sérstaks prófskírteinis. Námið veitir haldgóða þekkingu á starfi með börnum í leikskólum og hentar einkum þeim sem hafa starfað sem leiðbeinendur í leikskólum og hyggjast bæta við hæfni sína og/eða hefja leikskólakennaranám. Nemendur munu fá námseiningar metnar sæki þeir um áframhaldandi nám í leikskólafræðum við Háskóla Íslands.

Námið fer fram í Keili og verður skipulagt sem sveigjanlegt nám með starfi. Kennarar í leikskólakennarafræði heimsækja nemendur í heimabyggð, í húsnæði Keilis þar sem þunginn af náminu fer fram. Nemendur fara í heimsóknir á vettvang og heimsækja einnig Menntavísindasvið Háskóla Íslands í Stakkahlíð, sem ber faglega ábyrgð á náminu.

Kennslufræðileg nálgun mun byggja á virkri þátttöku nemenda, sköpun lærdómssamfélags, og sterkum tengslum fræða og fagvettvangs. Kennsluaðferðir verða fjölbreyttar og felast m.a. í vendinámi, einstaklings- og hópavinnu, vettvangsferðum og valdeflingu hvers nemanda.  

Markhópur

Námið er hluti af háskólanámi í leikskólakennarafræði en með góðum stuðningi. Öll námskeið sem nemendur taka nýtast þeim þannig í áframhaldandi námi. Markhópur námsins eru leiðbeinendur sem starfa í leikskólum á Suðurnesjum. 

Umsókn og nánari upplýsingar

Umsókn um námið fer fram af heimasíðu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Fólk velur umsóknargáttina, stofnar aðgang fyrst, passar að velja grunnnám - og námið sjálft heitir „Hagnýt leikskólafræði - grunndiplóma, 60e“Umsækjendur þurfa að sækja rafrænt um á þeirri síðu og hengja við tilheyrandi fylgigögn. Síðar verður kallað eftir staðfestum afritum af prófskírteinum/námsferilsyfirlitum frá þeim sem uppfylla inntökuskilyrðin.

Nánari upplýsingar má nálgast á faghaskoli@keilir.net