Fara í efni

Forvarnarstefna

Keilir vill stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri lífssýn nemenda sinna. Með þetta að markmiði er starfandi forvarnarteymi í skólanum sem er boðberi forvarna innan skólans og heldur utan um fræðslu í forvörnum.

Forvarnarstefna Keilis

Keilir vill stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri lífssýn nemenda sinna. Með þetta að markmiði er starfandi forvarnarteymi í skólanum sem er boðberi forvarna innan skólans og heldur utan um fræðslu í forvörnum.

Markmið skólans er

  • að efla sjálfsmynd nemenda og að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast á sinn einstaka hátt
  • að nemendur tileinki sér heilbrigðan lífsstíl
  • að vinna gegn einelti og hvers konar ofbeldi
  • að stuðla að vörnum gegn vanlíðan og sjálfsvígum
  • að koma í veg fyrir neyslu vímuefna og sporna gegn sjálfseyðandi hegðun

Leiðir

  • Skólinn er með forvarnafulltrúa sem:
  • mótar áætlun fyrir hvert ár og er árangur af starfinu metinn reglulega
  • stuðlar að umræðu um forvarnir meðal nemenda, kennara og foreldra
  • hefur samstarf við skóla og aðra aðila um forvarnir
  • vinnur að viðhorfsbreytingum sem hvetja til vímulauss lífernis
  • sér til þess að á engan hátt sé hvatt til neyslu tóbaks, áfengis eða annarra vímuefna innan skólans
  • leggur áherslu á vímulausar skemmtanir og fjölbreytt félagslíf nemenda
  • upplýsir og fræðir nemendur, kennara og foreldra um einkenni og skaðsemi vímuefnanotkunar og forvarnir
  • leggur áherslu á að forvarnir og umræða um þær séu hluti af skólastarfinu
  • stuðlar að góðum samskiptum í nemendahópnum
  • eflir íþróttir, listir og annað uppbyggilegt starf
  • leitar leiða til að hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi vegna vímuefnanotkunar
  • býður upp á áfallahjálp hjá fagfólki þegar þörf krefur
  • mótar sér skýrar reglur og viðurlög við brotum á þeim

Forvarnarfulltrúa ber að leggja kapp á að öll störf séu unnin af faglegum metnaði. Honum ber að stuðla að góðu samstarfi við starfsfólk skólans og veita nemendum þá þjónustu og aðstoð sem í starfinu felst. Forvarnarfulltrúa er skylt að gæta þagmælsku um atriði sem hann fær vitneskju um í starfi sínu. Hann skal vinna verk sín af trúmennsku og hagkvæmni og í góðu samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af störfum. Forvarnarfulltrúi skal hafa í heiðri við störf sín vönduð vinnubrögð í samræmi við lög og reglugerðir um skólastarf. Eins skal hann haga vinnu sinni samkvæmt gæðakerfi MÁ/Keilis og siðareglum kennara ásamt öðrum reglum sem skólinn setur sér og starfsmönnum sínum Forvarnarfulltrúi ber ábyrgð á að verkefni í hans umsjá verði framkvæmd og innan þess fjárhags- og tímaramma sem hefur verið áætlaður og samþykktur.

Forvarnafulltrúinn hefur umsjón með aðgerðaáætlun forvarnastefnu, sér til þess að verklagi hennar sé fylgt og að unnið sé markvisst að þeim markmiðum sem í henni koma fram. Fulltrúinn er tengiliður allra þeirra málsaðila sem koma að forvarnastarfi: skólastjórnenda, nemenda, foreldra, starfsfólks skóla, lögreglu, sveitarfélaga, heilbrigðisstarfsólks og fleiri. 

Rágjöf og fræðsla

  • FRÆÐSLA OG FORVARNIR www.forvarnir.is/ 
    Sigtún 42. 105 Reykjavík. Sími: 861 1582, frae(a)forvarnir.is 
    Opið virka daga kl. 10:00 - 12:00
  • FJÖRHEIMAR Félagsmiðstöð www.fjorheimar.is/ 
    Hafnargata 88, 230 Reykjanesbæ Sími: 421 8890, fjorheimar(a)reykjanesbaer.is
  • EMBÆTTI LANDLÆKNIS www.landlaeknir.is 
    Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Sími: 510 1900, mottaka(a)landlaeknir.is 
    Opið virka daga kl. 10:00–16:00
  • ÁSTRÁÐUR FÉLAG LÆKNANEMA www.astradur.is/fraedsla 
    Vatnsmýrarvegi 16, 101 Reykjavík
  • UMBOÐSMAÐUR BARNA www.barn.is 
    Borgartúni 7b, 2. hæð. 105 Reykjavík, Sími 800 5999, ub(a)barn.is 
  • SÁÁ heilbrigðisþjónusta www.saa.is/heilbrigdisthjonusta 
    Efstaleiti 7, 103 Reykjavík. Sími: 530 7600, saa(a)saa.is 
  • FORELDRAHÚS FYRIR FJÖLSKYLDUR Í VANDA www.foreldrahus.is 
    Suðurlandsbraut 50, Reykjavík, Bláu húsin Skeifunni, Sími 511–6160, foreldrahus(a)foreldrahus.is 
    Neyðarnúmer eftir lokun 581-1799
  • STÍGAMÓT www.stigamot.is 
    Laugavegi 170, 105 Reykjavík. Sími 562-6868, stigamot(a)stigamot.is 
    Opnunartímar móttöku: Mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga frá 9 f.h. til 4 e.h., fimmtudaga frá kl. 10 f.h. ti. 16 e.h.
  • RAUÐI KROSSINN www.raudikrossinn.is 
    Efstaleiti 9, 103 Reykjavík, Sími 570 4000, Hjálparsíminn 1717. info(a)redcross.is

Hafa samband við forvarnarfulltrúa

 

Senda ábendingu um efni síðu