Kennari
Sólveig Krista hefur starfað sem framhaldsskólakennari frá árinu 2007 við raungreinakennslu, m.a. í líffræði, efnafræði og eðlisfræði. Sólveig kenndi lengst af við Menntaskólann í Reykjavík en einnig verið með kvöld- og sumarnámskeið í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti.
Sólveig hefur kennt karate í yfir 20 ár og er einn af reyndustu karateþjálfurum landsins. Hún hefur starfað sem kennslustjóri, yfirþjálfari barna og unglinga sem og verið formaður karatefélagsins Þórshamars. Árið 2012 kláraði hún einnig jógakennaranám hjá Amarayoga.