Fara í efni

Háskólabrú í fjarnámi

Háskólabrú Keilis býður upp á nám fyrir einstaklinga sem hafa ekki lokið stúdentsprófi og geta nemendur að námi loknu sótt um háskólanám hérlendis og erlendis. Keilir er eini skólinn sem býður upp á aðfaranám í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir HÍ.

Háskólabrú hefur undanfarin ár markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Við veitum nemendum okkar persónulega þjónustu og reynum að efla sjálfstraust þeirra og sjálfstæði.

Háskólabrú í fjarnámi

Námið hefst með kynningu á starfinu og öflugu hópefli þannig að nemendur kynnist hverjir öðrum sem og kennurum, til að auðvelda samskiptin í framhaldinu. Námsfyrirkomulagið er með þeim hætti að nemendur mæta á staðlotur í upphafi hverrar námslotu. Staðlotur eru að jafnaði tveir dagar, föstudagur og laugardagur og fer námið fram í formi fyrirlestra og verkefna.  Æskilegt er að nemendur mæti á staðlotur. Ef lokapróf eru hluti af námsmati þá eru þau venjulega haldin á fimmtudagsmorgnum. Öll lokapróf er annars hægt að taka á viðurkenndum prófstöðum.

Boðið er upp á fjórar deildir á Háskólabrú: Félagsvísinda- og lagadeild, Hugvísindadeild, Viðskipta- og hagfræðideild og Verk- og raunvísindadeild. Lengd námsins fer eftir því hvaða deild er valin. Þannig tekur námið tvær annir fyrir þá nemendur sem ætla sér að stunda nám á öllum deildum nema verk- og raunvísindadeild en þar tekur námið þrjár annir.

Fjarnám Háskólabrúar Keilis hefst næst í ágúst 2020.

Nánari upplýsingar