Fara í efni

Útskrift úr deildum Keilis í júní 2020

Föstudaginn 12. júní næstkomandi fer fram útskrift nemenda úr atvinnuflugi, Háskólabrú og ÍAK styrktarþjálfun. Útskriftin fer fram kl. 15:00 í Hljómahöll í Reykjanesbæ. 

Sökum röskunar á skólahaldi á vorönn verður einnig fjölmenn útskrift í ágúst þegar brautskráðir verða nemendur ÍAK einkaþjálfun ásamt verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar.

Vegna aðstæðna og reglna um fjöldatakmarkanir verður útskriftin með breyttu sniði en vanalega. Gestir verða ekki leyfðir en þess í stað verða athafnir sýndar í beinu streymi sem hefst kl. 14:30.

Hlekkur á beint streymi frá útskrift Keilis 12. júní 2020