Fara í efni

Útskrift úr deildum Keilis í janúar 2020

Föstudaginn 17. janúar næstkomandi fer fram útskrift nemenda úr atvinnuflugmannsnámi, fjarnámi Háskólabrúar og fótaaðgerðafræði.

Athöfnin hefst kl. 15:00 í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ og er áætlað að hún taki um klukkustund. Útskriftarnemendur eru beðnir um að mæta kl. 13:30 vegna myndatöku og æfingar. Vinsamlegast skráið ykkur í útskrift á netfangið utskrift@keilir.net og tilgreinið gestafjölda. Hámarksfjöldi gesta er 2 - 3 með hverjum nemanda.

Fjöldi umsókna hefur borist um nám fyrir 2020, en í sumum deildum er enn hægt að sækja um nám á vorönn.