Fara í efni

Menntun og sjálfbær ferðaþjónusta

Keilir tekur þátt í samstarfsverkefninu "RARE R.O.U.T.E.S. - Responsible Original Unpolluting Tourism Entrepreneurship" sem er styrkt af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins. 

Verkefnið, sem hlaut hæstu einkunn allra Erasmus+ umsókna á Ítalíu, er til þriggja ára og hlaut samtals 416.000 Evra styrkveitingu.

Markmið þess verður að taka saman gögn og deila góðum starfsvenjum í sjálfbæri ferðaþjónustu ásamt því að styrkja stöðu ungs fólks á vinnumarkaði með eflingu starfsnáms, þekkingu og færni þeirra sem leiðtogar og frumkvöðlar innan greinarinnar.

Verkefnið er unnið í samstarfi við skóla og ferðaþjónustuaðila á Ítalíu og Tyrklandi og miðast við að styrkja samtarf milli skóla, sveitarfélaga, opinberra stofnana og fyrirtækja með það að markmiði að leiða saman færni og þekkingu nemenda í ferðaþjónustu við menningararf, umhverfismál og þá samfélagslegu arfleifð sem ferðaþjónustuaðilar styðjast við og nýta sér á ákveðnum svæðum. 

Markmiðið verður að þróa námsefni og starfstengd námskeið sem nýtast ferðaþjónustuaðilum sem vilja byggja á sjálfbæri og ábyrgri ferðaþjónustu.

Á verkefnatímanum munu samstarfsaðilarnir vinna að því að taka saman upplýsingar fyrir kennara um sjálfbæra og ábyrga ferðaþjónustu með áherslu á því að deila góðum starfsvenjum og aðferðafræði. Þá verða þróuð starfstengd námskeið með áherslu á hlutverk ungs fólks í að leiða sjálfbæra þróun í nærsamfélagi þeirra, kanna jákvæð áhrif sjálfbærar og ábyrgrar ferðaþjónustu á ungt fólk og nærsamfélags, auk þess að styrkja og efla starfstengd menntaúrræði í ferðaþjónustu.

Samstarfsaðilar Keilis eru starfsmenntaskólar frá Ítalíu og Tyrklandi, ICEI – International Economic Cooperation Institute, ásamt ferðaþjónustuaðilum frá samstarfslöndunum. Auk þess taka Markaðsstofa Reykjaness, Samtök ábyrgrar ferðaþjónustu (AITR) og Start-Up Turismo á Ítalíu, ásamt Alþjóðlegu samtökunum um félagslega ferðaþjónustu (ISTO) þátt í verkefninu.