Fara í efni

Námskynning á Sauðárkróki

Við verðum með opinn kynningarfund um námsframboð Keilis mánudaginn 4. mars kl. 20:00 í Farskólanum á Sauðárkróki. Við leggjum áherslu á að þetta verði létt spjall þar sem þú getur fengið upplýsingar um námsframboð skólans bæði í staðnámi og fjarnámi.

Þá verðum við með sérstaka kynningu á flugnámi á Alexandersflugvelli í hádeginu fimmtudaginn 7. mars þar sem þú getur skoðað flugvélakostinn  og spurt flugkennara um námið.

Við leggjum áherslu á að þetta verði létt spjall þar sem þú getur fengið upplýsingar um námsframboð skólans bæði í staðnámi og fjarnámi.

Námsframboð á haustönn 2019

  • Háskólabrú í stað- og fjarnámi, með og án vinnu
  • Leiðsögunám í ævintýraferðamennsku á háskólastigi
  • Tölvuleikjagerð á bæði framhalds- og háskólastigi
  • Einka- og styrktarþjálfaranám í fullu fjarnámi eða í fjarnámi með staðlotum
  • Atvinnuflugmannsnám og flugvirkjanám í einum stærsta flugskóla á Norðurlöndunum
  • Fótaaðgerðafræði sem heyrir undir heilbrigðisgreinar og er eina nám sinnar tegundar á Íslandi

Skráning á fundinn hérna