Fara í efni

Keilir hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2023

Fulltrúar félaga, fyrirtækja og sveitarfélaga sem veittu viðurkenningunni viðtöku ásamt Elizu Reed f…
Fulltrúar félaga, fyrirtækja og sveitarfélaga sem veittu viðurkenningunni viðtöku ásamt Elizu Reed forsetafrú sem ávarpaði ráðstefnuna.

Keilir fékk viðurkenningu Jafnvægisvogarinn ásamt 55 fyrirtækjum, 11 sveitarfélögum og 22 opinberum aðilum á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar sem haldin var við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 12. október. Jafnvægisvogin, er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu. Ráðstefnan bar yfirskriftina ,Við töpum öll á einsleitninni - Jafnrétti er ákvörðun. Viðurkenningarhafar Jafnvægisvogarinnar eru þeir sem jafna kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum. Að hreyfiaflsverkefninu standa auk FKA, forsætisráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, PiparTBWA, Ríkisútvarpið, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá. Nanna Kristjana Traustadóttir framkvæmdastjóri Keilis tók við viðurkenningunni fyrir  hönd Keilis. 

Viðurkenning fyrir kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi

Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði. „Það hefur verið gaman að fylgjast með Jafnvægisvoginni stækka undanfarin ár og jafnréttismál verða að mikilvægu forgangsmáli hjá okkar þátttakendum. Þátttakendur taka stoltir við viðurkenningu og hafa verið duglegir að vekja athygli á jafnréttismálum innan sinna vinnustaða með ýmsum hætti. Þrátt fyrir það eru konur einungis 21% framkvæmdastjóra í atvinnulífinu hér á landi og 24% séu stjórnendur stofnana og sveitafélaga tekin með. Þetta hlufall hefur lítið haggast á undanförnum árum líkt og sýnt var fram á í þeim erindum sem flutt voru á ráðstefnunni” að sögn Bryndísar Reynisdóttur verkefnastjóra Jafnvægisvogarinnar.

Jafnrétti hefur bein áhrif á umhverfið

Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Lundurinn er staðsettur við aðalinnganginn í Heiðmörk, Vífilsstaðamegin, og er það fyrsta sem fólk sér þegar það gengur inn í Heiðmörk. Valdar voru margar tegundir af trjám sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin er að stuðla að. Í ár verða gróðursett 89 tré eitt fyrir hvern viðurkenningarhafa árið 2023 og verður þá búið að setja niður samtals 262 tré í Jafnréttislundinum á síðustu 4 árum. 

Aðgengileg og skýr framsetning upplýsinga

Jafnvægisvogin heldur úti  mælaborði sem er ætlað að halda utan um tölfræðilegar upplýsingar um jafnrétti. Þannig er hægt að tryggja aðhald og sýna stöðuna eins og hún er hverju sinni. Í  mælaborði Jafnvægisvogarinnar koma fram allar helstu upplýsingar um stöðu kynjanna í íslensku atvinnulífi, svo sem kynjahlutföll stofnenda fyrirtækja, framkvæmdastjóra og stjórna. Þar má einnig finna upplýsingar um kynjahlutföll við brautskráningar úr háskólum, stöðu kynjanna innan atvinnugreina og GemmuQ kynjakvarðann fyrir skráð félög á markaði. Í mælaborðinu sem að Creditinfo, Deloitte og Jafnvægisvogarráðið hafa þróað eru upplýsingarnar gerðar aðgengilegar á einfaldan og skýran hátt. Keilir þakkar fyrir viðurkenninguna og óskar öllum þátttakendum Jafnvægisvogarinnar sem náðu settum markmiðum og fengu viðurkenningu innilega til hamingju.