Fara í efni

Fimm þúsundasti nemandi Keilis útskrifaður

Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs útskrifaði 59 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöll í Reykjanesbæ föstudaginn 6. júní. Athöfnin heppnaðist afar vel enda mikil gleði og stolt sem fylgir hverri útskrift. Náði Keilir þeim merka áfanga að hafa útskrifað yfir fimm þúsund nemendur af heildstæðri námsbraut og nú hafa 5036 einstaklingar útskrifast úr námi við skólann. Til viðbótar við þá nemendur þá hafa tæplega 8000 einstaklingar stundað nám eða tekið námskeið hjá Keili frá upphafi eða samtals tæplega 13.000 einstaklingar. Hrafnhildur Ýr Freysdóttir fékk blómvönd í tilefni þess að vera fimm þúsundasti útskrifaði nemandi Keilis. 

Guðný Pála Rögnvaldsdóttir og Rafn Hlíðkvist Björgvinsson hófu athöfnina með ljúfu tónlistaratriði. 

Því næst flutti Berglind Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Keilis, ræðu og stýrði athöfn. Megináhersla í ræðu framkvæmdastjóra var um mikilvægi þess að nám líkt og Háskólabrú sé nauðsynlegt í íslensku samfélagi fyrir fullorðna námsmenn sem hafa ekki lokið námi á framhaldsskólastigi og vilja hefja Háskólanám. Þá vitnaði framkvæmdastjóri í grein frá Heiðu Ingimarsdóttur ,,Þegar ég fékk séns"  sem fjallar um mikilvægi tækifæra fyrir fullorðna námsmenn og í því samhengi mennskuna og persónubundna nálgun í námi. Eins þá fór framkvæmdastjóri yfir mikilvægi þess að temja sér þakklæti með þeirri von að slíkt efli andlega heilsu.

Eftir ræðu framkvæmdastjóra flutti Anna Albertsdóttir ávarp fyrir hönd starfsmanna Keilis þar sem hún fór yfir vegferð nemenda í náminu á Háskólabrú og það hugrekki og staðfestu sem þeir sýndu í náminu. Þakkaði hún þeim sérstaklega fyrir samfylgdina og hvatti þá áfram að láta draum sinn vaxa áfram. 

Háskólabrú Keilis brautskráði samtals 59 bæði úr staðnámi og fjarnámi. Berglind Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri afhenti skírteini og viðurkenningarskjöl til útskriftarnema með aðstoð Dóru Hönnu verkefnastjóra. Nemandi með hæstu meðaleinkunn að þessu sinni var Telma Aníka Torfadóttir með meðaleinkunnina 9,83 sem er jafnframt hæsta meðaleinkunn frá upphafi skólans. Hlaut hún peningagjöf frá Arion banka og Keili sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Þá hlaut Arna Víf Hlynsdóttir Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi námsárangur og þrautseigju í námi. Bjarni Ásgeir Jónsson hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema Háskólabrúar og fór hann yfir kjarkinn sem þarf til að fara aftur af stað í nám eftir námshlé og mikilvægi þess að gefast ekki upp. 

Háskólabrú hefur boðið upp á aðfaranám til háskóla í 18 ár og hafa á þeim tíma átt sér stað miklar framfarir í kennsluháttum samhliða breyttum þörfum og kröfum nemenda. Nemendur geta valið um að sækja Háskólabrú í staðnámi eða fjarnámi, bæði með og án vinnu sem og viðbótarnám við stúdentspróf á verk- og raunvísindadeild. Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans.

Nú eru nemendur á Háskólabrú Keilis fleiri en á sama tíma í fyrra og sú námsleið heldur áfram sem fyrr, enda verið kjölfestan í starfseminni frá stofnun skólans árið 2007. Þá býður Keilir jafnframt upp á námskeið til undirbúnings fyrir inntökupróf í læknis-, tannlæknis- og sjúkraþjálfunarfræði við Háskóla Íslands en nú þegar hafa skráð sig rúmlega 300 nemendur og bætist í hópinn í hverri viku.

Myndasafn frá útskrift 6.júní 2025