Fara í efni

Farsælu Erasmus+ verkefni lokið

Myndin er af samstarfshópnum á síðasta vinnufundi verkefnisins í Aþenu
Myndin er af samstarfshópnum á síðasta vinnufundi verkefnisins í Aþenu

Keilir tók þátt í samstarfsverkefni á vegum Erasmus+ Menntaáætlunar ESB um nýjungar í kennsluháttum, þar á meðal vendinám, til að draga úr brottfalli, auka gæði í kennslu, og innleiða nýjar aðferðir sem taka mið af upplýsingatækni og tölvum í skólastarfi. Verkefninu lauk í ágúst og má nálgast niðurstöður hérna.

Verkefnið, sem hófst í ágúst 2016 og lýkur í ágúst 2018, gengur út á að fræða kennara í starfsmenntaskólum um nýjungar í kennsluháttum, þar á meðal vendinámi til að draga úr brottfalli, auka gæði í kennslu, og innleiða nýjar aðferðir sem taka mið af upplýsingatækni og tölvum í skólastarfi.

Umsóknaraðili var IIS Leonardo da Vinci starfsmenntaskólinn á Sikiley á Ítalíu og koma aðrir samstarfsaðilar frá Ítalíu, Spáni og Grikklandi, auk Menntaskólans á Tröllaskaga og Keilis á Íslandi.

Markmið verkefnisins er að þjálfa kennara í vendinámi og auka færni bæði kennara og nemenda í tölvulæsi. Hlutverk Keilis í verkefninu var að stýra tveimur fimm daga vinnustofum fyrir kennara á Spáni og Grikklandi í innleiðingu og notkun vendináms við kennslu. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu verkefnisins.

Samstarfsaðilar INTEMIS verkefnisins eru:
 
  • IIS Leonardo da Vinci starfsmenntaskólinn á Ítalíu
  • Essenia UETP, Ítalíu
  • Inercia Digital, Spáni
  • Acition Sinergy, Grikklandi
  • UCsyd Háskólinn í Danmörku
  • Háskólinn í Porto, Portúgal
  • Menntaskólinn á Tröllaskaga, Íslandi
  • Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Íslandi