Keilir Háskólabrú Háskóla Íslands útskrifaði 59 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöll í Reykjanesbæ föstudaginn 6. júní 2026. Athöfnin heppnaðist vel enda mikil gleðistund fyrir útskriftarnema og framtíð þeirra björt.
Eftir útskriftina höfðu 2771 nemandi útskrifast úr námi á Háskólabrú frá upphafi en þetta er fyrsti útskriftarhópurinn undir formerkjum Háskóla Íslands. Nám og námskeið Keilis miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs færðist yfir til Háskóla Íslands frá 1.janúar 2026 og því nemendur í þetta sinn að útskrifast úr aðfaranámi frá Háskóla Íslands en námið er kennt í staðnámi og fjarnámi á Suðurnesjum í nýju húsnæði að Keilisbraut 773, 262 Reykjanesbæ.
Athöfnin hófst með ljúfu tónlistaratriði frá Hildi Bjarneyju Torfadóttur og Þorvarði Ólafssyni.


Því næst flutti Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður ræðu og stýrði athöfn. Megináhersla í ræðu framkvæmdastjóra var um mikilvægi náms til að auka hæfni og færni einstaklingsins fyrir hann sjálfan sem og samfélagið. Að stunda nám krefst þrauseigju, góðrar skipulagningar sem og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og með öðrum. Dregið var fram mikilvægi aðfarnáms líkt og Háskólabrúar í íslensku samfélagi fyrir fullorðna námsmenn sem hafa ekki lokið námi á framhaldsskólastigi og vilja hefja háskólanám. Útskriftarnemendur voru hvattir til að halda áfram sinni námsvegferð og skrá sig í háskólanám. Þá hvatti hún alla viðstadda að leggja sitt af mörkum við að vera jákvæð, sýna hvort öðru virðingu, taka ábyrgð og huga að umhverfinu. Þá væri mikilvægt að taka ekki þátt í fordómafullri umræðu eða alhæfa alla út einum.
Þá færði Berglind útskriftarnemendum heilla- og hamingjuóskir frá Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskóla Íslands sem gat ekki verið viðstödd útskriftina að þessu sinni.
Eftir ræðu forstöðumanns flutti Stefán Ágústsson kennari á Háskólabrú ávarp fyrir hönd starfsmanna. Stefán hrósaði nemendum fyrir góðan árangur og hvatti þá áfram til frekara náms. Þá fór hann yfir sína reynslu af menntakerfinu á yngri árum og miðlaði þannig reynslu sinni til þeirra. Nefndi hann í því samhengi mikilvægi þess að hafa áhuga fyrir þeim verkefnum sem lögð eru fyrir sem og hvað innri sjálfskoðun og hugarfarsbreyting getur komið okkur langt til að ná settu marki. Viljinn er oft það sem þarf til að ljúka við áfanga eins og útskrift úr námi. Þá hvatti hann nemendur til að fagna áfanganum með einhverjum hætti.

Í framhaldi af ávarpi Stefáns steig á svið Margrét Kristín Pálsdóttir, fyrrum nemandi úr fyrsta útskriftarhópi Háskólabrúar frá árinu 2007 og núverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum. Margrét fór yfir sögu sína í náminu og breytta ásýnd Ásbrúarsvæðisins frá árinu 2007. Hún sagðist hugsa til námstímans með stolti, gleði og ánægju og er þakklát fyrir vináttuna sem skapaðist sem og tækifærið til að hefja háskólanám að loknu námi á Háskólabrú. Margrét sagði að tækifærin í framtíðinni væru óendanleg og hvatti nemendur að halda öllum dyrum opnum varðandi næstu skref. Sjálf valdi hún að hefja lögfræðinámi í framhaldi af Háskólabrú og tók fram að það hefði ekki hvarflað að henni fyrir 19 árum síðan að leiðir hennar myndu liggja aftur til Suðurnesja og hvað þá í starf lögreglustjóra svæðisins.
Í framhaldi af ávarpi Margrétar Kristínar voru 59 nemendur útskrifaðir af Háskólabrúar Keilis. Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður afhenti skírteini og viðurkenningarskjöl til útskriftarnema með aðstoð Dóru Hönnu verkefnastjóra. 
Nemandi með hæstu meðaleinkunn að þessu sinni var Kristófer Birnir Guðmundsson með meðaleinkunnina 9,64. Hlaut hann gjöf frá Keili fyrir góðan námsárangur. Áskell Jónsson hlaut Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi námsárangur, þrautseigju í námi og þátttöku í félagsstarfi. 

Steindór G. Guðmundarson Waage hélt að lokum ræðu fyrir hönd útskriftarnema Háskólabrúar og fór yfir sína sögu og menntagöngu fram að námi á Háskólabrú. Hann sagðist vera stoltur af því að ljúka þessum áfanga og nú væru allir vegir færir til að taka næsta skref en hann stefnir á háskólanám í framtíðinni. Steindór þakkaði fyrir stuðninginn frá starfsfólki, kennurum, samnemendum og aðstandendum á meðan náminu stóð. 
Háskólabrú hefur boðið upp á aðfaranám til háskóla í 19 ár og hafa á þeim tíma átt sér stað miklar framfarir í kennsluháttum samhliða breyttum þörfum og kröfum nemenda. Nemendur geta valið um að sækja Háskólabrú í staðnámi eða fjarnámi, bæði með og án vinnu sem og viðbótarnám við stúdentspróf á verk- og raunvísindadeild. Frá síðustu áramótum færðist nám Háskólabrúar undir starfsemi Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans.
Nú eru nemendur á Háskólabrú Keilis orðnir nemendur Háskóla Ísland og starfsfólk hluti af háskólanum. Ásamt námsleiðinni Háskólabrú býður skólinn jafnframt upp á námskeið til undirbúnings fyrir inntökupróf í læknis-, tannlæknis- og sjúkraþjálfunarfræði við Háskóla Íslands en það námskeið var að ljúka og hefst skráning aftur 1.september 2026. 

Myndasafn frá útskrift Keilis 5.júní 2026