Opnað verður fyrir umsóknir í nám á Háskólabrú og undirbúningsnámskeið fyrir inntökupróf þann 1.september. Mikil aðsókn hefur verið bæði í nám á Háskólabrú sem og undirbúningsnámskeiðið síðustu ár og hvetjum við áhugasama til þess að senda inn umsókn tímalega.
Háskólabrú
Nám á Háskólabrú hefur gefið fjölda fólks nýtt tækifæri til náms og hafa flestir útskrifaðir nemendur hafið háskólanám að náminu loknu. Á vorönn er boðið upp nám á Háskólabrú í staðnámi, fjarnámi eða með vinnu á þremur mismunandi deildum: félagsvísinda- og lagadeild, viðskipta- og hagfræðideild ásamt verk- og raunvísindadeild.
Einnig er boðið upp á viðbótarnám við stúdentspróf á verk- og raunvísindadeild sem hentar þeim nemendum sem lokið hafa stúdentsprófi en vilja styrkja sig í raunvísindum.
Ef umsækjanda vantar einingar upp á inntökuskilyrðin til að hefja nám þá er hægt að sækja undirbúningsáfanga í íslensku, ensku og stærðfræði og hefja nám á Háskólabrú í framhaldinu. Þeir sem hyggjast nýta sér þennan kost þurfa að sækja um tímanlega til þess að nægur tími gefist til að ljúka áföngum áður en nám hefst í janúar.
Undirbúningsnámskeið fyrir inntökupróf
Þá hefur einnig verið opnað fyrir undirbúningsnámskeið fyrir inntökupróf í læknisfræði, tannlæknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði.
Að skráningu lokinni opnast aðgangur að kennsluvef námskeiðsins sem inniheldur mikið af æfingaefni og því mögulegt að hefja strax undirbúning fyrir inntökuprófið.
Engin skipulögð dagskrá er fram að áramótum en þátttakendur geta nýtt sér æfingaefnið á kennsluvefnum að vild. Í janúar hefjast svo vikulegir stoðtímar sem standa fram í apríl. Í stoðtímum verða kennarar með innlögn á efni og dæmatímar fylgja svo í kjölfarið. Í maí hefjast svo daglegir fyrirlestrar sem standa yfir í u.þ.b. tvær vikur.
Kynningarfundur fyrir námskeiðið verður þann 13.október kl. 17.30 í húsnæði Háskóla Íslands en nákvæm staðsetning verður auglýst síðar.