18.11.2026
Opið er fyrir umsóknir í viðbótarnám við stúdentspróf hjá Keili Háskólabrú. Námið hentar fyrir fólk sem hefur lokið stúdentsprófi en vill auka þekkingu sína í raunvísindum og stærðfræði fyrir háskólanám á því sviði.
Hægt er að hefja námið í janúar og ágúst ár hvert og geta nemendur valið um að stunda það í staðnámi eða fjarnámi og jafnvel blanda því saman!
Kynntu þér námsleiðina enn frekar hér á vefsíðu Keilis viðbótarnám við stúdentspróf eða með því að hafa samband á netfangið haskolabru@keilir.net eða namsradgjafi@keilir.net