Fara í efni

Opið fyrir umsóknir á Háskólabrú haust 2025

Opið er fyrir umsóknir á Háskólabrú Keilis vegna haustannar 2025. Á Háskólabrú er boðið uppá nám fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi og uppfylla nemendur inntökuskilyrði í Háskóla Íslands að námi loknu.

Hægt er að velja um nám í staðnámi og fjarnámi eða blandað nám. Þá er hægt að stunda fullt nám sem er lánshæft hjá Menntastjóði eða nám samhliða starfi. 

Háskólabrú er öruggur og góður staður til þess að taka fyrstu skrefin að frekara námi. Mögulegt er að bóka tíma hjá náms- og starfsráðgjafa sem veita persónulega ráðgjöf varðandi næstu skref. Ekki hika við að kanna þína möguleika og láta draum þína rætast. 

Sjá nánari upplýsingar varðandi inntökuskilyrði og umsóknarfresti á Háskólabrú Keilis í meðfylgjandi hlekki:

Háskólabrú

Sækja um nám á Háskólabrú