18.03.2026
Mánudaginn 23.mars verður Háskóli Íslands með opinn kynningarfund um Keilir Háskólabrú í Fjölheimum á Selfossi. Kynningin byrjar kl. 17.00 og öll velkomin. Hægt verður að fræðast um Háskólabrú í staðnámi og fjarnámi sem er hægt að sækja bæði með og án vinnu. Tæp 3000 manns hefur lokið náminu og hefur Keili Háskólabrú markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Við veitum nemendum okkar persónulega þjónustu og reynum að efla sjálfstraust þeirra og sjálfstæði.
Verkefnastjóri kynnir fyrirkomulag námsins auk þess sem námsráðgjafar svarar spurningum gesta.