Fara í efni

Þráðlaust net - notkunarreglur

Í Keili er þráðlaust net sem er til notkunar fyrir starfsfólk og nemendur í tengslum við skólastarfið.

Um notkun nemenda á þráðlausa netinu gilda skólareglur og almennar tölvureglur. Nemendur fá eða hafa þegar fengið aðgangsorð hjá Tölvudeild eða kennara til að komast inná þráðlausa netið.

Nemendur hafa fyrst og fremst aðgang að netinu til að stunda nám sitt og því eru takmarkanir á notkun netsins í öðrum tilgangi.

Aðgangur að þráðlausa netinu sem veitt er hjá Keili er ætlaður til eflingar náms, kennslu, samvinnu og samskipta nemenda og annarra þátta er samræmast hlutverki og markmiðum Keilis.

Aðgang að þráðlausa neti Keilis ber að nota heiðarlega, siðlega og löglega. Hver einstakur notandi ber ábyrgð á notkun sinni.

Notandi skal sérstaklega gæta öryggis lykilorðs síns og gæta þess að nota það hvergi annarsstaðar t.d. á vefsíðum eða samfélagsmiðlum.

Virða ber friðhelgi annarra notenda og fara í einu og öllu eftir höfundarréttarákvæðum hugbúnaðar, forrita og gagna sem notuð eru. Virða ber reglur einstakra neta og upplýsingaveitna.

Notandi skal gæta að umfangi gagna sem flutt eru, kostnaði því samfara og áhrifum sem gætu skert notkunarmöguleika annarra notenda.

Óheimilt er að reyna að tengjast tölvubúnaði Keilis eða annarra aðila með því að gefa upp notendanafn/lykilorð sem viðkomandi hefur ekki rétt til að nota.

Óheimilt er að reyna að komast yfir lykilorð annarra notenda innan Keilis eða utan. Óheimilt er að gefa upp lykilorðið sitt.

Óheimilt er að reyna að komast yfir gögn eða hugbúnað í eigu annarra, nema skýrt leyfi sé fyrir hendi.

Óheimilt er að afrita hugbúnað eða gögn sem eru ekki í eigu viðkomandi notanda nema með skýru leyfi eiganda.

Óheimilt er að villa á sér heimildir í samskiptum, til dæmis þegar sendur er tölvupóstur eða á annan hátt.


Brot á reglum
Verði vart um brot á notkunarreglum getur orðið til þess að notandanafni viðkomandi aðila verði lokað og upplýsingar um meinta misnotkun sendar á viðkomandi deild til skoðunar.

Keilir áskilur sér rétt til að loka fyrir aðgang að neti, ef rökstuddur grunur leikur á að notkun viðkomandi sé hættuleg rekstraröryggi eða skaði orðstír Keilis.

Reglur þessar voru settar af Tölvudeild Keilis þann 1. mars 2023 og tóku þegar gildi.