Flýtilyklar
Umsókn um nám
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um nám á Háskólabrú fjarnám sem hefst í janúar 2012.
Umsókn þarf að fylgja: Afrit prófskírteina, starfsferilsskrá, stafræn mynd í góðri upplausn og persónulegt bréf.
Mikilvægt er að skila inn umbeðnum fylgigögnum því umsóknir eru ekki afgreiddar fyrr en öllum gögnum hefur verið skilað.
Inntökuskilyrði: Umsækjendur skulu hafa náð 25 ára aldri og hafa lokið að minnsta kosti 70 einingum á framhaldsskólastigi. Þar af þurfa umsækjendur að hafa lokið að minnsta kosti 6 einingum í stærðfræði, íslensku og ensku. Umsækjendur eiga möguleika á að fá starfsreynslu sína metna til eininga að hluta upp í þær lágmarkseiningar sem krafist er. LÍN lánar fyrir framfærslu og skólagjöldm samkvæmt reglum sjóðsins.
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni





