Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Nám á sviði heilsu, heilbrigðis, íþrótta- og uppeldisfræða, m.a. ÍAK einkaþjálfun. Þverfaglegt nám í orkutæknifræði og mekatróník tæknifræði og frumkvöðlanám í samstarfi við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Ei

Námsframboð Keilis

Heilsuskólinn

Heilsuskóli Keilis leggur áherslu á að þróa og bjóða uppá framúrskarandi nám á sviði heilsu, íþrótta- og uppeldisfræða. Nú þegar er kennt við skólann nám í ÍAK einkaþjálfun og ÍAK íþróttaþjálfun sem hefur vakið verðskuldaða athygli og nýtur mikilla vinsælda. Stefnt er að því að bjóða uppá nám í ÍAK hópþjálfun í haust. Aðstaða nemenda til náms og þjálfunar er einstaklega góð í stóru fjölnota íþróttahúsi á Ásbrú. Innan heilsuskólans er m.a. unnið að nýjum námsbrautum, s.s. ÍAK hópþjálfun, sjúkranudd og fíkniráðgjöf og forvarnir.



Orku- og tækniskólinn

Orku- og tækniskóli Keilis býður upp á þverfaglegt háskólanám í orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði í samstarfi við verkfræðideild Háskóla Íslands. Verklegar æfingar og rannsóknir nemenda fara fram í fyrsta flokks tilrauna- og rannsóknaraðstöðu í orkufræðum hjá Orku- og tækniskóla Keilis. Áhersla er lögð á að mennta sjálfstæða nemendur sem búa yfir mikilli greiningarhæfni, verkþekkingu og færni til að skapa og þróa nýjar tæknilausnir.



Flugakademían

Flugakademía Keilis stefnir að því að hafa allt flugtengt nám undir einum hatti og skipa því verðugan sess í skólakerfinu. Þegar erum við með í gangi einka- og atvinnuflugnám, flugrekstrarnám, flugþjónustunám og nám í flugumferðarstjórn og flugumsjón. Lögð er áhersla á nútímalega kennsluhætti og kennsluumhverfi en staðsetning skólans felur í sér einstakt tækifæri til þess að skapa frábæra aðstöðu til kennslu flugtengdra greina. Þegar á Keilir fimm glænýjar og fullkomnar kennsluflugvélar af gerðinni Diamond. 



Háskólabrúin

Háskólabrú Keilis er krefjandi undirbúningur fyrir háskólanám sem unnið er í samstarfi við Háskóla Íslands. Á Háskólabrú er boðið upp á nám fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi.

Til að uppfylla inntökuskilyrði Háskólabrúar þurfa nemendur að hafa lokið a.m.k. 70 einingum í framhaldsskóla og þar af 6 einingum í íslensku, ensku og stærðfræði.

Að loknu námi uppfylla nemendur inntökuskilyrði í háskóla hérlendis og erlendis og telst námið sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis og Háskóla Íslands. Nám á Háskólabrú er hægt að stunda í staðnámi og fjarnámi og kennsluhættir miðast við þarfir fullorðins fólks. Nemendum sem ekki uppfylla inntökuskilyrði Háskólabrúar gefst kostur á að sækja nám í Menntastoðum.



SÆKJA UM NÁM

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf