Fara í efni

Menntaskólinn á Ásbrú

Ný námsleið til stúdentsprófs með áherslu á tölvuleikjagerð hófst haustið 2019 undir Menntaskólanum á Ásbrú.

Þetta í fyrsta sinn sem Keilir býður upp á nám til stúdentsprófs frá því að skólinn var stofnaður árið 2007. Nám í tölvuleikjagerð á framhaldsskólastigi byggir á kjarna- og valfögum sem einskorðast ekki við forritun heldur taka á öllum fjölbreyttum þáttum sem til grundvallar eru fyrir skapandi starf leikjagerðarfólks, s.s.  hönnun, tónlist, hljóðupptökur, verkefnastjórnun og heimspeki o.fl. Þá er starfsnám sem og verkefna- og hópavinna mikilvægur hluti námsins.
 
Skólinn leggur áherslu á vendinám sem hefur verið stór hluti af starfi Keilis á undanförnum árum. Í náminu eru því hvorki hefðbundnar kennslustofur né hefðbundin stundatafla heldur sinna nemendur námi sínu og verkefnum í skólanum þar sem kennarar verða til staðar og leiðbeina þeim. Lögð er áhersla á nýstárlega nálgun í kennsluaðferðum og við námsmat. Til dæmis hefst skólinn seinna á daginn en aðrir framhaldsskólar, nemendur nýta snjalltæki í stað skólabóka og hefðbundin próf eru afnumin, þar sem stuðst er í staðinn við meðal annars símat, nemendaverkefni og jafningjamat.