27.09.2020
Við höfum opnað fyrir bókanir skjólstæðinga í verklega meðferðatíma og fara bókanir fram á skrifstofu Keilis í síma 578 4000 eða á netfangið keilir@keilir.net.
Meðferðatímar eru í boði á eftirfarandi dagsetningum:
- 1. október
- 3. október
- 12. október
- 13. október
- 14. október
Algengt er að það myndist biðlistar í tíma hjá nemendum og því mikilvægt að tilkynna forföll annaðhvort til skrifstofu Keilis eða með skilaboðum á Facebooksíðunni okkar.
Athugið. Vegna COVID-19 faraldursins biðjum við skjólstæðinga okkar vinsamlegast um að bera andlitsgrímur í meðferðatímum.