ÍAK einkaþjálfaranámið er það ítarlegasta sem er í boði á Íslandi, það er viðurkennt af menntamálaráðuneytinu sem starfsnám á þriðja hæfniþrepi og vottað af Europe Active á fjórða þrepi samkvæmt reglum Evrópusambandsins.
Nánari upplýsingar um námið
Námið er í heild 180 feiningar en 80 feiningar sérgreinar einkaþjálfaranámsins eru kenndar hér í Keili á tveimur önnum. Að námi loknu öðlast útskriftarnemendur viðurkenninguna ÍAK Einkaþjálfari frá Íþróttaakademíu Keilis.
Umsækjendur sem vantar ákveðna áfanga til að geta hafið nám hjá okkur geta tekið undirbúningsáfanga í Hlaðborði Keilis. Þar er að sækja opna framhaldsskólaáfanga í fjarnámi hvenær sem er og á þínum hraða. Nánari upplýsingar hér.
Eina einkaþjálfaranám á Íslandi viðurkennt af menntamálaráðuneytinu og vottað af EuropeActive
ÍAK einkaþjálfaranámið er það ítarlegasta sem er í boði á Íslandi og hafa nú um 800 nemendur lokið náminu. Námið er viðurkennt af menntamálaráðuneytinu sem starfsnám á þriðja hæfniþrepi og miðast við að skila nemendum tilbúnum til starfa við þjálfun og því er mikil áhersla lögð á að tengja fræðina við verklega kennslu og atvinnulífið. Þá er námið vottað af Europe Active á fjórða þrepi samkvæmt reglum Evrópusambandsins og fá útskrifaðir ÍAK einkaþjálfarar skráningu í EREPS gagnagrunn stofnunarinnar.