Flýtilyklar
Þjálfarabúðir Keilis
23. - 25. september 2010 í Heilsuskóla Keilis að Ásbrú
Skráningu lýkur 15. september.
Michael Boyle er meðal þeirra stjörnuleiðbeinenda sem kenna við einstakar þriggja daga þjálfarabúðir Keilis fyrir fagfólk
í þjálfun og heilsurækt. Leiðbeinendurnir verða þrír og koma allir frá Bandaríkjunum, dr. Chris Mohr, Michael Boyle og
Dave Jack. Allir eiga það sameiginlegt að vera leiðandi á sínu sviði innan Bandaríkjanna svo hér gefst íslenskum þjálfurum
einstakt tækifæri til að fá nýjustu fræðin og reynslusögurnar beint í æð.
Dagskrá
![]() |
Dagur 1 |
| Næring til árangurs dr. Chris Mohr Chris fær þann heiður að opna þjálfarabúðirnar, fimmtudaginn 23. september og mun hann upplýsa þátttakendur um hvaða næring er heppilegust fyrir íþróttamenn sem þurfa að hafa mikla orku og halda sér í topp formi. Chris er með doktorsgráðu í næringarfræði, hefur farið heilan Ironman og þjálfar úrvalsdeildarlið í amerískum fótbolta. |
|
|
|
|
![]() |
Dagur 2 |
|
Kostir starfrænnar þjálfunar (Functional
Training) Hinn eini, sanni Michael Boyle kennir í þjálfarabúðunum föstudaginn 24. september. Mike var að gefa út bók um kosti starfrænna æfinga. |
|
|
|
|
![]() |
Dagur 3 |
| 1. Þjálfun: Frá góðum í bestan 2. Hámarksárangur á lágmarks tíma Dave Jack Dave lokar Þjálfarabúðum Keilis laugardaginn 25. september. Fyrir hádegi mun hann kenna þátttakendum nokkur lykilatriði sem skipta máli þegar hjálpa á skjólstæðingi í að verða bestur frá því að vera bara góður. Eftir hádegi mun Dave síðan taka fyrir mjög spennandi þjálfunaraðferðir sem taka mið af því að fólk nái sem mestum árangri á sem skemmstum tíma. Þátttakendur fá að taka vel á því! |
|

Michael Boyle -
Myndband
Tími og
staðsetning
Þjálfarabúðirnar verða haldnar í Keili á Ásbrú, dagana 23. - 25. september, milli kl. 09:00 og 16:00.
Nánari
upplýsingar
Samstarfsaðliar











