Fara í efni

Námsgjöld

Uppfært 14. júní 2022 - Allar upphæðir eru endurskoðaðar árlega miðað við þróun vísitalna og annarra þátta sem hafa áhrif á rekstur skólans. Tölur og dagsetningar eru settar fram með fyrirvara um villur. 

Nám á Háskólabrú er sett upp samkvæmt reglum Menntasjóðs námsmanna sem lánar sérstaklega fyrir námsgjöldum. Námið veitir einnig þeim sem uppfylla skilyrði rétt til framfærsluláns. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins. Þá hvetjum við umsækjendur til að kanna rétt sinn hjá stéttarfélögum þar sem mörg þeirra aðstoða félagsmenn sína við greiðslu skólagjalda. 

Námsgjöld á Háskólabrú

Hver áfangi á Háskólabrú kostar 23.500 kr.* hvort heldur sem er í fjarnámi og staðnámi.

  • Fullt nám á félagsvísinda- og lagadeild er 290.000 kr.
  • Fullt nám á viðskipta- og hagfræðideild: 337.000 kr.
  • Fullt nám verkfræði- og raunvísindadeild: 384.000 kr.
  • Fullt nám á hugvísindadeild: 325.500 kr.
  • Viðbótarnám við stúdentspróf: 243.000 kr.

*Utan áfangans Nám og störf sem kostar 8.000 kr.

Staðfestingargjald er 78.500 kr. og er innifalið í námsgjöldum. Námsgjöld fyrir hverja önn eru reiknuð út frá áætluðum einingafjölda hvers nemanda. Ef þú tekur til dæmis færri áfanga á önn, lækka námsgjöldin sem því nemur. Athugið að ekki er farið af stað með námsbraut nema lágmarks fjöldi nemenda náist.

Reglur um námsgjöld

  1. Staðfestingargjald er innheimt strax að lokinni samþykkt í nám.
  2. Staðfestingargjald er óafturkræft, hætti nemandi við að hefja nám hjá Keili. Annars dregst það frá skólagjöldum fyrstu annar.
  3. Skóla- og efnisgjöld eru innheimt fyrir hverja önn sérstaklega eða heila námsleið, allt eftir eðli námsskipulags. Gjöldin skulu vera að fullu greidd áður en nám hefst á viðkomandi önn eða námsleið.
  4. Nemandi sem ekki hefur greitt gjöld sín þegar önn hefst fær ekki að hefja nám á viðkomandi önn eða námsleið og aðgangi hans að net- og kennslukerfum Keilis er lokað.
  5. Skóla- og efnisgjöld eru óendurkræf.
  6. Gjöld skulu greidd með kröfu sem send er í heimabanka, hægt er að sjá reikninginn undir "rafræn skjöl" í viðkomandi heimabanka.

Almenn verðskrá Keilis vegna vottorða, prófa o.fl.