Flýtilyklar
Orku- og tækniskólinn
Orku- og tækniskóli Keilis býður upp á fjölfaglegt og hagnýtt tæknifræðinám á háskólastigi sem veitir
útskrifuðum nemum rétt til að sækja um lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur. Námið fléttar saman bóklegt
nám og verkefnavinnu sem byggir á raunverulegum atvinnutengdum verkefnum. Markmið okkar er að útskrifa nemendur með framúrskarandi þekkingu og
færni á sínu kjörsviði ásamt því að hafa náð að virkja og efla sköpunargleðina. Boðið er upp á
námið í samstarfi við Háskóla Íslands.
Tæknifræði hjá Keili
Sérhæfing er góð, en sá breiði bakgrunnur sem fæst með þverfaglegu námi hjá Orku- og tækniskóla Keilis veitir aðra sýn á lausn verkefna og gerir útskrifuðum nemendum okkar mögulegt að vinna sem sérfræðingar á þeim sviðum sem höfða til þeirra eða sem verkefnisstjórar þverfaglegra vinnuhópa. Námið er skipulagt í nánu samstarfi við fyrirtæki sem reiða sig á tæknilausnir, og byggir á þörfum atvinnulífsins fyrir tæknimenntað starfsfólk í framtíðinni. Námið er í senn góður grunnur fyrir áhugaverð framtíðarstörf í atvinnulífinu og fyrir frekara háskólanám bæði hérlendis og erlendis.
Atvinnumöguleikar
Eftir útskrift munu nemendur hafa um marga kosti að velja. Það er von okkar að einhver hluti af nemendum stofni sprotafyrirtæki út frá hugmyndum sem þeir fá á meðan þeir eru í námi. Orku- og tækniskóli Keilis mun aðstoða þessa nemendur ásamt öðrum góðum fyrirtækjum við að vinna úr viðskiptahugmyndunum og gera þær að veruleika. Eftir tæknifræðina geta nemendur valið um margvísleg störf á almennum vinnumarkaði, allt frá tilraunastofum yfir í þjónustufyrirtæki, framleiðslufyrirtæki, orkufyrirtæki og verkfræðistofur.
Mikil þörf er fyrir vel menntað starfsfólk í hugverka-, tækni- og orkufyrirtækjum í íslensku atvinnulífi. Hægt er að
skoða grein um atvinnumál tæknifræðina sem Karl Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður tæknifræðináms Keilis skrifaði í
nóvember 2011. [Grein: Skortur á háskólamenntuðu fólki
í tæknigreinum]
Fréttir
Háskóladagurinn 2012
Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt á árlegum Háskóladegi, sem verður haldinn, 18. febrúar
næstkomandi kl. 12 - 16. Gestir geta kynnt sér nám, starfsemi og þjónustu Keilis í Háskólabíó.
Lesa meira
Rannsóknir á nýtingu þörunga
Keilir, ásamt Alkemistanum og Náttúrustofu Reykjaness, hlutu á dögunum styrk úr Atvinnuþróunarráði sveitarfélaga á
Suðurnesjum til rannsókna á nýtingu og vinnslu á lífrænt vottuðum þörungum til notkunar í heilsu- og húsvörum.
Lesa meira
Heimsókn til AGH tækniháskólans í Kraká
Fulltrúar Keilis fór á dögunum í heimsókn til AGH tækniháskólans í Kraká í Póllandi. Heimsóknin
var farin að tilstuðlan og í boði rektors og aðstoðarrektora AGH, til að fylgja eftir heimsókn þeirra til Keilis síðastliðið haust.
Ljóst er að það er gagnkvæmur áhugi beggja skóla á nánu samstarfi í framtíðinni.
Lesa meira
Opið fyrir umsóknir í tæknifræði
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um háskólanám í tæknifræði (BSc) á haustönn 2012. Námið er til þriggja
ára og er boðið upp á sérhæfingu í mekatróník og umhverfis- og orkutæknifræði. Smellið hér fyrir nánari upplýsingar.
Lesa meira
Ræktun í upphituðum jarðvegi
Nýverið birtist grein í tímariti Tækniseturs Oregon í jarðhitarannsóknum "Geo-Heat Center Quarterly" þar sem fjallað er um rannsóknir á Íslandi sem tengjast nýtingu jarðhita í
landbúnaði. Björg Árnadóttir, nemandi á lokaári í orku- og umhverfistæknifræði hjá Keili, vinnur BSc verkefni sitt í
samstarfi við einn höfunda greinarinnar um nýtingu á affalli húsa til upphitunar jarðvegs.
Lesa meira
Lesa meira
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni
Keilir á samfélagsmiðlum
Get ég hafið nám í tæknifræði ef ég er með iðnmenntun?
Já. Í þeim tilfellum þar sem nemendur hafa ekki lokið stúdentsprófi, bjóðum við nemendum að taka þá áfanga
sem vantar uppá í Háskólabrú samhliða háskólanáminu í tæknifræði. [Skoðaðu fleiri spurningar og svör]






















