Skip to content

IAK Personal Trainer Program Starts in August

The IAK personal trainer program is the most advanced program of its' kind in Iceland. It is recognized by the Ministry of Education as a third level professional initiation and has achieved full, professional, Level 4 accreditation through Europe Active.

Further information about the program in Icelandic

Námið er í heild 180 feiningar en 80 feiningar sérgreinar einkaþjálfaranámsins eru kenndar hér í Keili á tveimur önnum. Að námi loknu öðlast útskriftarnemendur viðurkenninguna ÍAK Einkaþjálfari frá Heilsuakademíunni.

Umsækjendur sem vantar ákveðna áfanga til að geta hafið nám hjá okkur geta tekið undirbúningsáfanga í Opnum áföngum. Þar er að sækja opna framhaldsskólaáfanga í fjarnámi hvenær sem er og á þínum hraða. Við hvetjum þá sem nýta sér þetta úrræði að sækja um tímalega svo nægur tími gefist til þess að ljúka öllum áföngum áður en nám í einkaþjálfun hefst í haust. 

Eina einkaþjálfaranám á Íslandi viðurkennt af menntamálaráðuneytinu og vottað af EuropeActive

ÍAK einkaþjálfaranámið er það ítarlegasta sem er í boði á Íslandi og hafa nú um 800 nemendur lokið náminu. Námið er viðurkennt af menntamálaráðuneytinu sem starfsnám á þriðja hæfniþrepi og miðast við að skila nemendum tilbúnum til starfa við þjálfun og því er mikil áhersla lögð á að tengja fræðina við verklega kennslu og atvinnulífið. Þá er námið vottað af Europe Active á fjórða þrepi samkvæmt reglum Evrópusambandsins og fá útskrifaðir ÍAK einkaþjálfarar skráningu í EREPS gagnagrunn stofnunarinnar.

 

Umsóknarfrestur er til 15. maí næstkomandi

FREKARI UPPLÝSINGAR UM ÍAK EINKAÞJÁLFARANÁM