05.04.2019
Það verður opið hús í nýjasta framhaldsskóla landsins, Menntaskólanum á Ásbrú Tölvuleikjabraut, laugardaginn 6. apríl kl. 14 - 16. Skólinn er staðsettur í aðalbyggingu Keilis að Grænásbraut 910 í Reykjanesbæ.
Gestum gefst tækifæri á að skoða vinnurýmið í sköpunarferlinu og fá innsýn í hvernig námsrými og kennsluhættir vinna saman í að skapa skapandi aðstöðu til náms. Þá verður hægt að hitta kennara sem aðhyllast nútíma vinnubrögð við nám og kennslu, ásamt því að spjalla við náms- og starfsráðgjafa um hvernig nemendur geta sniðið námið að sínum þörfum.
Fulltrúar frá Myrkur Games segja frá töluvleikjaiðnaði á Íslandi og atvinnumöguleika fyrir fólk með stúdentspróf í tölvuleikjagerð. Þá verður einnig hægt að kynnast námsleiðum á háskólastigi sem tengjast leikjagerð í háskólum bæði hérlendis og erlendis, svo sem forritun, tölvunarfræði, leikjagerð til BS gráðu, o.fl.
Kynntu þér einstakt námstækifæri og einstaklingsmiðaða þjónusta í þína þágu.
Nánari upplýsingar um Menntaskólann á Ásbrú og nýtt nám til stúdentsprófs með áherslu á tölvuleikjagerð á www.menntaskolinn.is