11.03.2019
Keilir verður með kynningu á atvinnuflugnámi Flugakademíu Keilis og Menntaskólanum á Ásbrú - Tölvuleikjabraut á Mín framtíð 2019 (Íslandsmóti iðn- og verkgreina) í Laugardalshöll dagana 14. - 16. mars.
Opið fyrir almenning:
- Fimmtudaginn 14. mars kl. 14 - 17
- Föstudaginn 15. mars kl. 14 - 17
- Laugardagur 16. mars kl. 10 - 16 (fjölskyldudagur)
Komið og kynnið ykkur spennandi nám í nýjasta framhaldsskóla landsins og flugnám í stærsta flugskóla á Norðurlöndunum.