Fara í efni

Menntamálaráðherra setur Menntaskólann á Ásbrú í fyrsta sinn

Nemendur í tölvuleikjagerð ræða við Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra
Nemendur í tölvuleikjagerð ræða við Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra
Fyrsta skólasetning Menntaskólans á Ásbrú fór fram í aðalbyggingu Keilis þann 19. ágúst 2019 að viðstaddri Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Þar komu saman nemendur í fyrsta árangi tölvuleikagerðarbrautar skólans en nýbreytni er að boðið sé upp á slíkt nám á framhaldsskólastigi hér á landi. Rúmlega fjörtíu nemendur hefja námið á haustönn og komust færri að en vildu. 

„Tilurð þessarar nýju brautar er gott dæmi um árangurríkt samstarf stjórnvalda, menntakerfisins og atvinnulífsins og vil ég þakka Keili, Samtökum iðnaðarins, Samtökum leikjaframleiðanda og Samtökum verslunar og þjónustu fyrir árangursríka samvinnu við það að koma brautinni á laggirnar. Með þeirri ákvörðun að veita fjármagni til þessa verkefnis standa vonir til þess að með auknu námsframboði á framhaldsskólastigi finni fleiri nemendur nám við hæfi að loknum grunnskóla. Það er fátt eins nauðsynlegt fyrir okkur sem samfélag en að hver og einn fái notið sín í því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ sagði ráðherra af þess tilefni. 

Námið byggir á kjarna- og valfögum sem einskorðast ekki aðeins við forritun heldur taka á fjölbreyttum þáttum sem skapandi starfs leikjagerðarfólks, s.s. hönnun, tónlist, hljóðupptökum, verkefnastjórnun og heimspeki o.fl. Þá er starfsnám og verkefna- og hópavinna mikilvægur hluti námsins.