29.04.2021
Við Menntaskólann á Ásbrú er starfrækt eina stúdentsbraut landsins með sérhæfingu í tölvuleikjagerð.
Við námsbrautina er mikil áhersla á nútímaleg vinnubrögð kennara og nemenda í hvívetna, með tilheyrandi samstarfi við fyrirtæki í hugverkaiðnaði. Námsbrautin er breiður grunnur til framhaldsnáms á háskólastigi með færni til framtíðar að leiðarljósi.
Kennara vantar í eftirfarandi kennslugreinar fyrir skólaveturinn 2021 - 2022:
- Ljósmyndun
- Stærðfræði
- Enska
- Heimspeki
- Íslenska
Gerð er krafa um háskólamenntun í kennslugreininni og jafnframt fullgild kennsluréttindi á framhaldsskólastigi í viðkomandi grein. Við hvetjum öll kyn til þess að sækja um störf hjá skólanum. Skólameistari veitir nánari upplýsingar á nanna@keilir.net.
Umsóknarfrestur er til og með 8. maí 2021.
Fullum trúnaði heitið.