Menntaskólinn á ÄSBRO
Við erum ólík, innhverf eða félagslega virk, þurfum næði eða þrífumst í umhverfi með öðrum. Það hentar ekki að setja okkur öll í sama boxið. Við erum hreyfanleg, virk og gagnvirk, og við viljum ekki að byggingar eða aðstæður skilgreini hvar, hvernig eða hvenær við lærum. Fólk lærir ekki lengur á þeim stöðum sem við höfum fyrirfram skilgreint sem námsaðstöðu. Við lærum þar sem okkur hentar og þegar okkur hentar. Við erum farin að læra allsstaðar annarsstaðar en við skrifborðið á skrifstofunni með bókunum og borðtölvuna. Við lærum við borðstofuborðið, í eldhúsinu, í rúminu, á gólfinu, á kaffihúsinu, með vinum okkar. Við lærum hvar og hvenær sem okkur hentar best.
Það er því ekki nóg að breyta því hvernig námið fer fram, við þurfum líka að endurskilgreina í hvernig umhverfi það fer fram. Ef okkur líkar vel við að læra í hlýlegu, frjóu og fjölbreyttu umhverfi, afhverju eiga þá skólastofurnar að vera kerfisbundin og vélræn uppröðun á borðum og stólum sem beina allri athyglinni að kennaranum. Skólastofurnar okkar eru þannig að breytast úr því að kennarinn sé í aðalhlutverki og nemendurnir sitja eins og óvirkir hlustendur, yfir í lifandi umhverfi sem virkjar nemendur og þeirra áhugasvið.
Skólastofa framtíðarinnar verður hluti af Menntaskólanum á Ásbrú þar sem áhersla verður lögð á nútímalegar kennsluaðferðir, svo sem vendinám. Í náminu verða hvorki hefðbundnar kennslustofur né hefðbundin stundatafla heldur munu nemendur sinna námi sínu og verkefnum í skólanum þar sem kennarar verða til staðar og leiðbeina þeim. Skólinn mun byrja seinna í svartasta skammdeginu, nemendur munu nýta rafræn gögn og open source námsbækur í stað skólabóka og það verða engin lokapróf, þess í stað verður fjölbreytt námsmat yfir önnina.