16.08.2020
Nemendur þurfa að hafa fartölvu til umráða í náminu. Lágmarks hugbúnaðarkröfur fyrir fartölvur eru æskilegar:
- i5 10300H 4kjarna 4.5Ghz
- 8GB vinnsluminni
- 6GB GeForce GTX 1060
Eða sambærilegt
Einnig er nauðsynlegt að hver og einn hafi mús með þremur tökkum (eða tveimur tökkum og skrunhjóli). Vinsamlegast athugið að í fartölvur keyptar erlendis vantar oft < > | takka en þeir eru mikið notaðir í forritun og því nauðsynlegir.
Vegna aðstæðna í samfélaginu ráðleggjum við nemendum einnig að hafa góð heyrnatól með míkrafón og góða vefmyndavél.
uppfært í ágúst 2020