Fara í efni

Enska á 3. þrepi

Nemendur vinna með menningu og sögu í tilteknu enskumælandi samfélagi, venjur þar og siði. Unnið með lestur og ritun texta af fjölbreyttri gerð. Nemendur efla grunnorðaforða vísinda og fræða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er á að nemendur byggi ofan á þá þekkingu og leikni sem þeir hafa öðlast í fyrri áföngum.

Fyrirkomulag, verð og umsókn

Hægt er að sækja námskeið í Hlaðborði Keilis hvar og hvenær sem er. Hver áfangi í Hlaðborðinu kostar 20.000 kr. og fer skráning fram á Innu. Nemendur hafa fjóra mánuði til að ljúka hverjum áfanga, frá því þeir skrá sig inn á Moodle. Nánari upplýsingar veitir Linda Björk, verkefnastýra Keilis í síma 578 4073 eða á hladbord@keilir.net.

Nánar um Hlaðborð Keilis

Markmið áfanga á Hlaðborði Keilis eru miðuð við Aðalnámskrá framhaldsskólanna. Áfangarnir skiptast upp í hæfnistig og undir hverju hæfnistigi eru fyrirlestrar, námsefni, æfingar og moodle verkefni. Þegar nemandi hefur lokið moodle verkefninu með einkunnina 5 eða hærra telst hann hafa náð því hæfnisstigi.

Heildarfjöldi vinnustunda nemanda eru 18 - 24 klst m.v. hverja einingu og þeir áfangar sem verða í boði til að byrja með eru allir 5 einingar. Það er því misjafnt hvað kennari ætlar nemendum í vinnustundir t.d. hlusta á fyrirlestra, lesa ítarefni, vinna verkefni, moodleverkefni o.þ.h. það er allt sem telur. Því er ekki hægt að segja til um nákvæmlega hversu margir fyrirlestrarnir eiga að vera. Nemendur hafa fjóra mánuði til að ljúka hverjum áfanga fyrir sig.