Fara í efni

Viðskiptablaðið: Námsleið með áherslu á tölvuleikjagerð

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu fagna samkomulagi um nýja námleið til stúdentsprófs með áherslu á tölvuleikjagerð sem boðið verður upp á hjá Keili - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs frá næsta hausti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Um leið og samtökin óska Keili til hamingju, lýsa þau sérstakri ánægju sinni með aðkomu Lilju Alfreðsdóttur, menna- og menningarmálamálaráðherra að málinu, enda námsleiðin sögð brjóta blað í sögu framhaldsmenntunar á Íslandi. Þá er námið sagt til merkis um breyttar áherslur í menntamálum og aukið samstarf menntakerfisins og atvinnulífsins.

Tölvuleikjaiðnaðurinn á heimsvísu veltir í dag meira en bæði kvikmyndaiðnaðurinn og tónlistariðnaðurinn og spáð er áframhaldandi vexti. Ísland er sagt eiga öflug fyrirtæki nú þegar í þessum geira, en með þessu skrefi séu opnaðir möguleikar á enn meiri þátttöku Íslands í þessum öfluga iðnaði. Námið verði að auki fjölbreytt og hagnýtt og megi leiða líkum að því að það nýtist nemendum ekki bara í tölvuleikjaiðnaðinum heldur í ýmsum skapandi greinum.

Að lokum segir í tilkynningunni að fagna beri námsframboði sem þessu, sem líklegt sé að höfði til hópa sem í dag virðist ekki finna sig í hefðbuna skólakerfinu. Eigi það sérstaklega við um drengi, en brottfall þeirra úr framhaldsnámi valdi miklum áhyggjum.

Lesa fréttina