Fara í efni

Keilir tekur þátt í Evrópuverkefni um tölvuleikjanám

Fulltrúar erlendra leikjagerðarskóla voru afar áhugasamir um Menntaskólann á Ásbrú
Fulltrúar erlendra leikjagerðarskóla voru afar áhugasamir um Menntaskólann á Ásbrú

Á dögunum var haldinn verkefnafundur á Íslandi í fjölþjóðlega Erasmus+ verkefninu GameEdu. Um er að ræða samstarfsverkefni fjögurra Evrópulanda um nám í tölvuleikjagerð á framhaldsskólastigi og í starfsmenntun. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins og eru samstarfsaðilar Keilis, skólarnir Yrgo í Svíþjóð, Dania í Danmörku og Grafisch Lyceum Utrecht í Hollandi. 

Markmiðið með verkefninu er að efla samstarf milli landanna og deila góðum starfsvenjum þegar kemur að þróun markaðssetningu og eflingu leikjagerðarnáms.

Á verkefnafundinum á Íslandi heimsótti hópurinn leikjagerðarfyrirtæki á Íslandi, þar með talið Myrkur Games, Parity og CCP) auk þess sem samstarfsaðilar kynntu sér hvernig Menntaskólinn á Ásbrú nýtir vendinám og nýstárlega námsaðstöðu í kennslu.

Í verkefninu, sem hófst haustið 2018 og er til tveggja ára, vinna skólarnir að sameiginlegum markmiðum og þróa nýjar kennsluaðferðir fyrir leikjagerðarnám í löndunum. Þá verður sérstök áhersla lögð á að jafna kynjahlutföll í náminu. Á meðan á verkefninu stendur verða kynntar áherslur í leikjagerðarnámi og meðal leikjagerðarfyrirtækja í samstarfslöndunum.
 
Þá verða haldnar þrennar vinnubúðir fyrir kennara í tölvuleikjanámi þar sem skipst verður á góðum starfsvenjum og skoðuð samlegðaráhrif sem varða kennslu, þróun námsgagna og fyrirkomulag námsins. Kennarar á vegum MÁ munu þannig sækja námskeið á vegum Dania skólans í Danmörku í lok janúar næstkomandi.
 
Tölvuleikjanám hjá Keili
 
Fyrir Keili skiptir samstarfsverkefnið sérstaklega miklu máli, þar sem skólinn hefur undanfarin ár unnið að uppsetningu nýs náms í tölvuleikjagerð til stúdentsprófs. Mun samstarfið við skólana þannig skipta miklu máli við þróun og uppsetningu sérhæfðra námskeiða hjá Keili, auk þess sem stefnt er að bæði starfsmanna- og nemendaskiptum milli landanna í framtíðinni.
 
Námið byggir á kjarnafögum og valfögum sem einskorðast ekki við forritun, heldur taka á öllum þeim fjölbreyttu og ólíku þáttum sem eru til grundvallar fyrir skapandi starf leikjagerðarfólks. Sem dæmi má nefna hönnun, listir, tónlist, hljóðupptökur, verkefnastjórnun, heimspeki, o.fl. Þá verður starfsnám, verkefna- og hópavinna stór þáttur í náminu. Skólinn mun leggja áherslu á vendinám sem hefur verið stór hluti af starfi Keilis á undanförnum árum. Í skólanum verða hvorki hefðbundnar kennslustofur né hefðbundin stundatafla heldur munu nemendur stunda sína vinnu í skólanum þar sem kennarar verða til staðar og leiðbeina þeim.
 
Frumkvöðlasetur fyrir leikjagerðarfyrirtæki
 
Einn liður í verkefninu er að skoða frumkvöðlasetur sem hafa myndast í samstarfi við þá skóla sem bjóða upp á nám í tölvuleikjagerð í samstarfslöndunum. Í þessum frumkvöðlasetrum hafa einyrkjar og lítil fyrirtæki í leikjagerð fengið aðstöðu til að þróa og koma leikjum á framfæri auk þess sem þau hafa boðið upp á starfsþjálfun fyrir nemendur í náminu. Þá hafa fjölmargir nemendur farið beint yfir í frumkvöðlasetrin að námi loknu og stofnað sín eigin fyrirtæki.
 
Áhugi er fyrir því að koma upp slíku frumkvöðlasetri - GamePark Iceland - á Ásbrú í framtíðinni, þá í nánu samstarfi við leikjagerðarnám Keilis og háskólanáms í tölvuleikjagerð á vegum Noroff, sem Keilir hefur haft milligöngu með hér á landi. Þess má geta að í frumkvöðlasetrinu The Game Incubator í Gautaborg hafa orðið til yfir 100 fyrirtæki og 500 störf á þeim fjórtán árum sem setrið hefur verið starfrækt.