Fara í efni

45 nýnemar samþykktir í Menntaskólann á Ásbrú

Haustið 2019 hefst nýtt nám til stúdentsprófs í Menntaskólanum á Ásbrú. Skólinn sem er staðsettur í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ hefur verið nokkur ár í burðarliðnum og eru skólastjórnendur ánægðir með viðbrögðin.

Samkvæmt Nönnu Kristjönu Traustadóttur forstöðumanns stúdentsbrauta Keilis bárust ríflega eitt hundrað umsóknir um skólavist á haustönn 2019 en skólinn hefur vilyrði fyrir 40 nemendaígildum á ársgrundvelli samkvæmt samningi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið sem var undirritaður fyrr á árinu. „Við tökum inntökuviðtöl við alla umsækjendur og vorum við gríðarlega ánægð með hversu fjölbreyttur hópurinn var og hversu áhugasamir krakkarnir voru fyrir náminu“ segir Nanna Kristjana, en hún verður fyrsti skólameistari Menntaskólans á Ásbrú. „Þetta er ástæðan fyrir því að við tökum inn fleiri nemendur en við fáum ígildi fyrir.“
 
Rúmlega helmingur nemenda búsettir utan Reykjanessins
 
„Gæði umsóknanna gerði okkur einstaklega erfitt fyrir að velja úr einstaklinga í þennan fyrsta hóp nemenda í tölvuleikjanámið, en markmiðið var að búa til öflugan og samheldinn hóp fólks með breiðan bakgrunn og fjölbreytt áhugasvið. Það er nefnilega þannig að tölvuleikjagerð er svo sannarlega ekki samansafn einsleitra einstaklinga með áhuga á forritun, heldur skiptir máli að hafa fólk sem hefur líka áhuga á listgreinum, skapandi hugsun, verkefnastjórnun, frumkvöðlastarfi og teymisvinnu svo eitthvað sé nefnt“ bætir Nanna við.
 
Af samþykktum umsóknum er um fimmtungur nýnema stelpur en aukinn áhugi kvenna hefur verið á tölvuleikjagerð og forritun á undanförnum árum. Flestir nemendur eru búsettir í Reykjanesbæ eða tólf talsins en samtals koma 22 nemendur í þessum fyrsta árgangi frá Reykjanesi. 19 nemendur koma af höfuðborgarsvæðinu, þar af eru flestir, eða níu talsins, búsettir í Hafnarfirði. Þá koma aðrir nemendur víðsvegar af landinu, svo sem Akureyri og Grundarfirði.
 
Nýstárleg skólastofa í samstarfi við IKEA
 
Þessa dagana er unnið að því að klára aðstöðu nemenda og námsrými skólans sem verður staðsett í þeim hluta aðalbyggingar Keilis sem áður hýsti tæknifræðinám Háskóla Íslands. „Við áttum gott samstarf við IKEA þar sem við fengum góðar hugmyndir og húsgögn sem henta slíku námsrými. Útkoman verður vonandi ein nýstárlegasta og skemmtilegasta skólastofa landsins.“
 
Markmiðið verður að skapa vinnuaðstöðu í sérklassa sem verður sérstaklega hannað með það að leiðarljósi að vera nútímalegt fjölbreytt og aðlaðandi starfsumhverfi þar sem nemendum líður vel og langar til þess að sinna vinnu sinni.??
 
Nútímalegt og sveigjanlegt staðnám
 
Samkvæmt Nönnu er skólastofa kannski ekki réttnefni, þar sem leitast verður við að hanna og setja upp fjölbreytt og sveigjanlegt rými sem hentar mismunandi kröfum og þörfum nútíma nemenda. „Þetta verður í anda þeirrar nýbreytni í kennsluaðferðum sem hefur einkennt skólastarf Keilis á undanförnum árum. Við verðum með nútíma kennsluhætti, vendinám, þverfaglega vinnu og verkefnamiðað vinnulag. Það verða engin lokapróf heldur leggjum við áherslu á fjölbreytt námsmat sem sinnt er jafnt og þétt. Þá munum við seinka upphafi vinnudags nemenda í svartasta skammdeginu.??“
 
Menntaskólinn á Ásbrú verður settur í fyrsta sinn þann 16. ágúst næstkomandi með nýnemadegi og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá mánudaginn 19. ágúst. Nánari upplýsingar um skólann og námið má nálgast á heimasíðu Menntaskólans á Ásbrú.