Fara í efni

Kvikmyndasaga

Í áfanganum verður fjallað um sögu kvikmyndanna, frá fyrstu verkum frumkvöðlanna til dagsins í dag. Fjallað verður um helstu tímabil, strauma og stefnur, þekkta framleiðendur, leikstjóra, leikara og leikkonur. Einnig verður fjallað um kvikmyndina sem áróðurstæki og sem leið til að skrá sögu okkar. Íslenskar kvikmyndir verða teknar sérstaklega fyrir.

Áfanganum er ætlað að efla læsi nemenda á kvikmyndir, að þeir þekki til þróunnar kvikmyndarinnar sem listforms og sem afþreyingariðnaðar og að helstu áhrifavaldar séu þeim kunnir. Áfanganum er einnig ætlað að efla gagnrýna og skapandi hugsun og almenna þekkingu á kvikmyndaiðnaðinum.

Fyrirkomulag og verð

Hægt er að sækja námskeið í Hlaðborði Keilis hvar og hvenær sem er. Hver áfangi í Hlaðborðinu kostar 20.000 kr. og fer skráning fram á Innu. Nemendur hafa fjóra mánuði til að ljúka hverjum áfanga, frá því þeir skrá sig í hann á kennsluvef Keilis. Frekari upplýsingar veitir fulltrúi Menntaskólans á Ásbrú á hladbord@keilir.net.

Nánar um Hlaðborð Keilis

Markmið áfanga á Hlaðborði Keilis eru miðuð við Aðalnámskrá framhaldsskólanna. Áfangarnir skiptast upp í hæfnistig og undir hverju hæfnistigi eru fyrirlestrar, námsefni, æfingar og moodle verkefni. Þegar nemandi hefur lokið moodle verkefninu með einkunnina 5 eða hærra telst hann hafa náð því hæfnisstigi.

Heildarfjöldi vinnustunda nemanda eru 18 - 24 klst m.v. hverja einingu og þeir áfangar sem verða í boði til að byrja með eru allir 5 einingar. Það er því misjafnt hvað kennari ætlar nemendum í vinnustundir t.d. hlusta á fyrirlestra, lesa ítarefni, vinna verkefni, moodleverkefni o.þ.h. það er allt sem telur. Því er ekki hægt að segja til um nákvæmlega hversu margir fyrirlestrarnir eiga að vera. Nemendur hafa fjóra mánuði til að ljúka hverjum áfanga fyrir sig.