Opið er fyrir innritun nemenda í framhaldsskólanám á haustönn 2021. Innritun eldri nema lýkur 31. maí og lokainnritun 10. bekkinga lýkur 10. júní næstkomandi.
Skráning fer fram á heimasíðunni Menntagátt. Athugið að námið er skráð undir Menntaskólanum á Ásbrú en ekki Keili.
Nánari upplýsingar um innritun í námið
Allir umsækjendur eru boðaðir í inntökuviðtal við fulltrúa Menntaskólans á Ásbrú. Til viðbótar við inntökuviðtalið er miðað við að umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi með hæfnieinkunn B í ensku, íslensku og stærðfræði - eða hafi lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. Samkvæmt reglugerð nr. 1150/2008 um innritun í framhaldsskóla eiga umsækjendur undir 18 ára aldri rétt á að stunda nám í framhaldsskóla og hafa þannig forgang fram yfir eldri umsækjendur. Hæfni umsækjenda er metin út frá fyrrnefndum viðmiðum og býðst skólavist m.t.t. hæfnimats. Inntökufjöldi getur verið ólíkur milli anna.
Menntaskólinn á Ásbrú byggir á praktískum verkefnum með sterkum tengslum við atvinnulífið þar sem lögð er áhersla á færni til framtíðar, nútíma kennsluhætti og vinnuaðstöðu í sérklassa. Markmið okkar er að bjóða upp á nám í tölvuleikjagerð sem svarar bæði ákalli atvinnulífsins eftir vel menntuðu og sérhæfðu starfsfólki og áhuga ungs fólks á menntun til starfa í skapandi greinum.
- Lokainnritun 10. bekkinga fer fram 6. maí til 10. júní
- Innritun eldri nemenda fer fram 5. apríl til 31. maí
Kynnið ykkur nám í tölvuleikjagerð til stúdentsprófs í nýjasta skóla landsins á www.menntaskolinn.is