Fara í efni

Nemendur MÁ vinna að sáttmála um rafræn samskipti

Í ljósi þeirra umræðu sem hefur verið í samfélaginu undanfarið um einelti og annað eins ofbeldi á netinu var ákveðið að halda opinskáa umræðu um málaflokkinn. Úr varð málþing Menntaskólans á Ásbrú um rafræn samskipti, samstarfsverkefni starfsfólks MÁ, nemendafélagsins Örgjörvans og Lögreglunnar á Suðurnesjum. Málþingið fór fram í vikunni og stóðu nemendur Menntaskólans á Ásbrú sig með mikilli prýði.

Fulltrúar MÁ leituðu til lögreglunnar á Suðurnesjum í haust um að koma að verkefninu og hófst málþingið með erindi frá lögreglunni: „Fótspor inn í framtíðina - hvað geri ég og hvað skil ég eftir?“. Erindið var flutt af Eiríki Guðna Ásgeirssyni, rannsóknarlögreglumanni, og Öldu Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingi lögreglunnar á Suðurnesjum fyrir fullum sal af nemendum og starfsfólki MÁ ásamt námsráðgjöfum úr öðrum skólum á Suðurnesjum. Að sögn þeirra Eiríks Guðna og Öldu Hrannar var þetta að öllum líkindum í fyrsta skiptið sem slíkt málþing hefur verið haldið í framhaldsskóla hér á landi.

Það er óhætt að segja að mörgum hafi brugðið við að hlusta á Eirík Guðna rannsóknarlögreglumann og sérfræðing í tölvurannsóknum fara yfir hvaða afleiðingar óæskileg framkoma og samskipti geta haft.

Að sögn þeirra Eiríks Guðna og Öldu Hrannar var mikilvægt að fá tækifæri til að eiga samtal við nemendur um alvarleika ofbeldis, eineltis og annars konar neikvæðrar hegðunar á stafrænum miðlum því það hefur veigamikið forvarnargildi í för með sér. „Lögreglan er ánægð og þakklát fyrir að hafa fengið að hitta þennan flotta nemendahóp og ræða þetta mikilvæga málefni. Frábærar viðtökur frá salnum á meðan á erindinu stóð og algjörlega magnaður hópur sem var ófeiminn við að spyrja og taka þátt.“

Að erindi loknu tóku nemendur MÁ til sinna ráða og völdu fjórar spurningar til að vinna með í vinnuhópum. Starfsfólk sammældist um það að þetta væri vinna nemenda, þeirra hugmyndir og gáfu þeim frelsi til að velja og vinna með spurningarnar án nokkurra fordóma eða inngrips. Starfsmenn voru ritarar og hópstjórar en að öðru leyti var umræðan algjörlega nemenda. Spurningarnar voru eftirtaldar:

  1. Hvernig eiga nemendur í MÁ að haga sér í samskiptum á netinu?
  2. Hvað er neteinelti og hvernig áttu að bregðast við því?
  3. Hvernig ætlum við sem skóli að bregðast við óviðeigandi hegðun á netinu?
  4. Hver er þín tillaga að texta í sáttmála MÁ um betri samskipti á netinu?

Að þingi loknu fékk nemendaráð Örgjörvans og hagsmunafulltrúi nemenda niðurstöðu umræðna afhenta og verður hún unnin áfram í samvinnu við starfsmenn skólans.

Ingigerður Sæmundsdóttir, forstöðumaður MÁ sagði að erindi lögreglunnar hefði verið sláandi og margt komið sér á óvart í umræðum milli nemenda og lögreglu. „Nemendur voru mjög hreinskilnir og áttu opið og gott samtal við lögregluna sem svaraði þeim af virðingu og fróðleik. Það var svo margt sagt og rætt á þessum klukkutíma og ég efast ekki um að þau hefðu getað haldið áfram að ræða við lögfræðinginn og rannsóknarmanninn miklu lengur.”

Að sögn eins nemanda sem tók þátt í vinnuhóp var mikil ánægja með þingið af hálfu nemenda skólans: „Við gátum sagt svo margt sem skiptir okkur máli og það var gott að fá skólann til að hlusta á það sem við höfum að segja”.

Geir Finnsson, kennari og félagsmálafulltrúi skólans var fundarstjóri á þinginu og kvaðst afar ánægður með daginn: „Fréttir undanfarin misseri af alvarlegum afleiðingum neteineltis hafa vegið þungt á okkur öllum og því var frábært að geta átt þetta opinskáa samtal við nemendur. Það skiptir máli að veita nemendum tækifæri og traust til að láta rödd sína heyrast um mikilvæg mál sem þessi því það hefur marktæk áhrif. Ég hvet aðra skóla til að gera slíkt hið sama”.