Fara í efni

Listamaðurinn Jóna Hlíf með kynningu í MÁ

Samband íslenskra myndlistamanna stendur fyrir skólakynningum listamanna og var Menntaskólinn á Ásbrú valinn fyrir skólakynningu þetta árið. Þriðjudaginn 15. nóvember mun því listamaðurinn Jóna Hlíf koma til okkar, kynna sig og list sína, fyrir nemendum Menntaskólans á Ásbrú.

Jóna Hlíf útskrifaðist frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2005, lauk MFA-gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007 og MA-gráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands 2012. Jóna Hlíf hefur haldið einkasýningar á viðurkenndum sýningarstöðum, m.a. í Listasafni Reykjavíkur og í Listasafninu á Akureyri. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og eru verk hennar í eigu opinberra safna.

Kjarninn í myndrænni tjáningu verka Jónu Hlífar eru textaverk, tilraunir með efni og innsetningar. Texti sem áferð: sem leið til að birta hugsanir, við að setja fram og skapa samfélag, eða sem grundvöllur hugmynda. Í verkunum hefur Jóna Hlíf m.a. fengist við fyrirbærin kjarna, tíma og ímynd sögunnar. Nánari upplýsingar um verk Jónu Hlífar er að finna á heimasíðu hennar, jonahlif.is.