Fara í efni

Nám í alþjóðlegum menntaskóla

Mennta- og menningarmálaráðuneytið veitir árlega einum íslenskum nemanda styrk til náms við Alþjóðlega menntaskólann (e. Red Cross Nordic United World College) í Flekke í Noregi. Skólinn er hluti af alþjóðlegu skólasamtökunum United World Colleges (UWC), sem reka 18 skóla í 15 löndum. UWC er í fararbroddi alþjóðlegrar menntunar til stúdentsprófs, með það að markmiði að menntun ungmenna með ólíkan menningarbakgrunn auki skilning og samstarf milli þjóða og menningarheima. Nám við skólann í Noregi tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi (e. International Baccalaureat Diploma – IB). Kennsla fer fram á ensku.

Í skólastarfinu er lögð sérstök áhersla á umhverfis-, samfélags- og mannréttindamál og önnur mikilvæg viðfangsefni samtímans. Skólinn á í samstarfi við Rauða krossinn og Norðurlöndin, sem eiga aðild að stofnun hans. Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist á hverju ári. Þeir skulu hafa lokið sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum 16-18 ára. Styrkþegi þarf sjálfur að greiða fargjöld sín.

Fylla þarf út tvö umsóknareyðublöð, eitt á íslensku og annað á ensku og einnig skila inn afritum af prófskírteinum og meðmælum.

    • Umsóknir berist til mennta- og menningarmálaráðuneytisins gegnum netfangið mrn@mrn.is í síðasta lagi mánudaginn 1. mars 2021.
    • Nánari upplýsingar veitir Ásta María Reynisdóttir, asta.reynisdottir@mrn.is
    • Hér má nálgast umsóknareyðublöðin sem fylla þarf út, það íslenska og það enska
    • Upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðunni uwcrcn.no