Fara í efni

Vinnuverndarnámskeið fyrir 15-17 ára unglinga í vinnuskólum

vinnuskoli-15-17-ara-stor.png

Á námskeiðinu er farið yfir hvað unglingar á aldrinum 15-17 ára mega vinna við hjá vinnuskólum. Helstu málaflokkar vinnuverndarinnar eru teknir fyrir með sérstaka áherslu á það sem þessi hópur vinnur við s.s. sópa, raka, tína rusl, reita arfa, mála, garðvinnu o.s.frv. Sérstakur kafli er um vinnu með sláttuvélum og háþrýstidælum en munur er á hvaða vélar einstaklingar á þessu aldursbili mega nota og til hvers. 

Uppbygging

Námskeiðið fer fram í fjarnámi en nemendur geta tekið þátt stafrænt eða saman í hóp eftir því hvað hentar hverju sinni. Námsefnið er byggt á stuttum fyrirlestrum, eftir hvern kafla svara nemendur nokkrum spurningum sem þarf að svara rétt til að halda áfram.

Hægt er að skoða námsefnið og taka prófin eins oft og til þarf til þess að ná fullum skilningi. Enginn fær nákvæmlega sama prófið tvisvar þar sem spurningar eru valdar af handahófi úr spurningabanka til þess að tryggja að niðurstöður endurspegli þekkingu.

Námsefnið er myndrænt og notast er við myndbönd af NAPO sem er teiknimyndapersóna gerð af vinnuverndarstofnun Evrópu. Vinnuskólar og flokkstjórar eru hvattir til þess að nota myndirnar um NAPO í sínu fræðslustarfi.

Í lok námskeiðsins er miðað við að þátttakendur hittist og búi til samskiptareglur fyrir sinn vinnustað í sumar. 

Námskeiðið skiptist í 8 kafla og ítarefni

  1. Kynning
  2. Vinnuverndarstarf og öryggismál
  3. Slysavarnir
  4. Persónuhlífar
  5. Líkamsbeiting
  6. Vinna við vélar
  7. Hættuleg efni
  8. Að líða vel í vinnunni

Ítarefni fyrir mjög áhugasama nemendur og foreldra

Hvað tekur námskeiðið langan tíma? 

Hver og einn fer í gegnum námsefnið á eigin hraða en gera má ráð fyrir að það taki um 1 klst. að kynna sér allt efni námskeiðsins.

Hvenær hefst námskeiðið?

Vinnuskólar stjórna því hvenær námskeið hefst. Við upphaf námskeiðs fá nemendur sendar leiðbeiningar og hlekk á námsefnið og geta hafist handa þegar þeir vilja. 

Kynningarmyndband

Verð og nánari upplýsingar

Námskeiðið er ætlað vinnuskólum sveitarfélaga og stærri fyrirtækjum. Verð ræðst af fjölda þátttakenda. Nánari upplýsingar veitir Bjartmar Steinn verkefnastjóri Vinnuverndarskóla Íslands.