Keilir hefur undanfarið unnið að gerð fjölbreyttra námskeiða með áherslu á úrræði fyrir atvinnulausa einstaklinga úr ferðaþjónustunni. Þrátt fyrir tímabundna erfiðleika ferðaþjónustu hérlendis og erlendis er ljóst að það eru mýmörg tækifæri sem tengjast menntun, endurmenntun og þjálfun starfsfólks í ferðaþjónustu og tengdum greinum.
Stök námskeið kosta 35.000 kr. en athygli er vakin á því að Nýsköpunarakademían býður einnig upp á námslínurnar Betri þjónusta og Betri stjórnun fyrir þá sem hafa hug á að bæta þekkingu sína á ferðaþjónustu. Við hvetjum þá sem hafa hug á að skrá sig á fleiri en eitt námskeið utan námslínu til þess að hafa samband við Þórir Erlingsson, verkefnastjóra Nýsköpunarakademíu
Nánari upplýsingar veitir Þórir Erlingsson, verkefnastjóri Nýsköpunarakademíu ferðaþjónustunnar