Fara í efni

Vinnuverndarstarf á skrifstofu

Á námskeiðinu er farið er yfir vinnuverndarstarf sem á að fara fram á öllum vinnustöðum. Fjallað er um áhættumat á skrifstofum og farið er yfir fimm megin svið þess. Mest áhersla er lögð á líkamsbeitingu við tölvuvinnu og umhverfisþætti s.s. inniloft og loftræstingu, hita, hávaða og lýsingu. Hvað er gott og aðlaðandi vinnuumhverfi? Gildi heilsueflingar, hlé- og styrktaræfinga skipta miklu máli í vinnu. Einnig er fjallað um andlegt og félagslegt vinnuumhverfi, einelti og áreitni. Kynnt er stefna og viðbragðsáætlun vegna eineltis og áreitni. 

Uppbygging

Námskeið Vinnuverndarskóla Íslands byggjast upp á vendinámi. Viku áður en námskeið hefst fá nemendur sent námsefni sem þeir kynna sér áður en þeir koma í kennslustofu eða fjarkennslu í Teams. Í fjarkennslu fer kennarinn yfir efnið svo eru umræður og spurningar.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar öllum starfsmönnum skrifstofa

Lengd

Undirbúningur heima eða á vinnustað og 2 klst. á Teams fundi eða í kennslustofu.

Dagsetningar

Námskeiðið er haldið reglulega í fjarnámi. Einnig er hægt að halda námskeiðið fyrir einstök fyrirtæki eftir nánara samkomulagi. Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningar þegar nýjum námskeiðum er bætt við. Næstu námskeið eru sem hér segir:

  • Þriðjudaginn, 23. febrúar, kl. 13-15 í fjarnámi

Verð, nánari upplýsingar og skráning

Námskeiðið kostar 15.900 kr. Innifalin eru öll námsgögn, aðgangur að kennslukerfi og fyrirlestrum, ásamt vinnu í kennslustofu.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kjerúlf, forstöðumaður Vinnuverndarskóla Íslands. Vinsamlegast smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að skrá þátttakendur á námskeiðið. Áður en námskeiðið hefst verður opnað fyrir aðgang þátttakenda að kennslukerfi og fyrirlestrum á netinu, ætlast til að þátttakendur hafi kynnt sér efnið áður en kennsla hefst.

Skráning á námskeið