Fara í efni

Grunnnámskeið vinnuvéla

Grunnnámskeið vinnuvéla veitir réttindi á allar stærðir og gerðir vinnuvéla sem eru réttindaskyldar auk brúkrana sem ekki eru réttindaskyldir. Þátttakendur geta hafið verklegt nám á allar gerðir réttindaskyldra vinnuvéla undir leiðsögn leiðbeinanda sem hefur kennsluréttindi að námskeiði loknu. 

Uppbygging

Öll námskeið Vinnuverndarskólans eru kennd í vendinámi og mun námið því vera að mestu leyti gagnvirkt. Nemandi horfir á fyrirlestra, les ítarefni, horfir á myndbönd og leysir verkefni. Hægt er að horfa á hvern hluta eins oft og hver einstaklingur þarf eða vill. Til þess að komast áfram í námskeiðinu þurfa nemendur reglulega að standast verkefni og próf. Námskeiðinu lýkur með upprifjun og krossaprófi sem fer fram í kennslustofu á vegum Vinnuverndarskóla Íslands, einnig er hægt að taka lokaprófið í fjarnámsmiðstöðvum í kringum landið eftir frekara samkomulagi. Námskeiðið fylgir námsskrá Vinnueftirlitsins

  1. Lög, reglur og reglugerðir
  2. Vinnuverndarstarf og öryggismál
  3. Hávaði, lýsing og hættuleg efni
  4. Félagslegur og andlegur aðbúnaður, einelti og áreitni
  5. Eðlisfræði, vökvafræði, ásláttarbúnaður, stöðugleiki, uppsetning og flutningur vinnuvéla
  6. Vélfræði, rafgeymar og hleðsluklefar fyrir rafgeyma
  7. Lyftarar og lyftitæki í skráningarflokkum J og K, meðferð á vörubrettum og vörum
  8. Jarðvinnuvélar, gröfur, traktorsgröfur, ámokstursskóflur, jarðýtur, vegheflar, dráttarvélar og smávinnuvélar í skráningarflokkum E, F, G, H, I. Auk kafla um öryggi við skurðgröft
  9. Kranar, byggingakranar, hleðslukranar, vökvakranar, grindarbómukranar, brúkranar, steypudælukranar og körfukranar í skráningarflokkum A, B, C, D og P. Auk kafla um hífivíra, stuðningsfætur, fjarstýringar krana, að hífa fólk með krana og merkjakerfi fyrir kranastjórn
  10. Útlagningarvélar, fræsarar og valtarar í skráningarflokkum L og M

Vinnuverndarskólinn hvetur nemendur til að halda sig að náminu þegar það er hafið og ljúka að jafnaði einum kafla á dag

Ávinningur

Þátttakendur geta hafið verklegt nám á allar gerðir réttindaskyldra vinnuvéla undir leiðsögn leiðbeinanda sem hefur kennsluréttindi að námskeiði loknu. Þegar verklegri þjálfun er lokið er óskað eftir prófdómara frá Vinnueftirlitinu, en öll verkleg þjálfun og próf fara fram á vinnustöðum nemenda.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið er aðgengilegt öllum sem náð hafa 16 ára aldri en til þess að geta fengið fullgild vinnuvélaréttindi verður viðkomandi að vera orðinn 17 ára og hafa bílpróf. 

Dagsetningar

Hægt er að hefja námið hvenær sem er. Þátttakendur geta lagt stund á námið á sínum hraða og þannig hentar námskeiðið vel með vinnu. Reikna má með að það taki a.m.k. 10-12 daga að lágmarki að ljúkanámskeiðinu, en það þarf að lúkja því innan tveggja mánaða. Þegar þátttakendur hafa lokið öllu kennsluefninu í fjarnáminu mæta þeir í kennslustofu og taka lokapróf.

Bókleg lokapróf verða sem hér segir

  • Miðvikudaginn 21. apríl 2021, kl. 13 í Keili
  • Miðvikudaginn 19. maí 2021, kl. 13 í Keili
  • Miðvikudaginn 9. júní 2021, kl. 13 í Keili
  • Miðvikudaginn 18. ágúst 2021, kl. 13 í Keili

Verð, nánari upplýsingar og skráning

Námskeiðið kostar 63.000 kr. Innifalin eru öll námsgögn, aðgangur að kennslukerfi og fyrirlestrum.

Stéttarfélög veita flest styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir hluta af námsgjöldum en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar í gegnum vinnuveitanda og Vinnumálastofnun.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kjerúlf, forstöðumaður Vinnuverndarskóla Íslands. Vinsamlegast smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að skrá þátttakendur á námskeiðið. 

Skráning á námskeið