Fara í efni

Verkstjóranámskeið

Farið er yfir ábyrgð og skyldur verkstjóra á vinnustað. Allur búnaður á að vera góður og öruggt skipulag verður að ríkja á vinnustað sem verkstjóri hefur umsjón með. Vinnuverndarlögin nr. 46/1980 eru kynnt og helstu reglugerðir sem falla undir þau.

Á námskeiðinu er farið yfir helstu málaflokka vinnuverndar, s.s. áhættumat, hávaða, lýsingu, inniloft, efni og efnahættur, líkamlega áhættuþætti, félagslega og andlega áhættuþætti, einelti og áreitni, vinnuslys og notkun persónuhlífa. Talað verður sérstaklega um ábyrgð og skyldur verkstjóra á vinnu ungs fólks.

Uppbygging

Námskeið Vinnuverndarskóla Íslands byggjast upp á vendinámi. Viku áður en námskeið hefst fá nemendur senda fyrirlestra og lesefni sem þeir kynna sér áður en þeir koma í kennslustofu eða fjarkennslu í Teams. Í fjarkennslu í Teams byrjar kennari á því að fara stuttlega yfir aðalatriði efnisins, svo eru umræður og unninn verkefni.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Alla verkstjóra, flokkstjóra og aðra stjórnendur fyrirtækja.

Ávinningur

Aukin þekking á ábyrgð og skyldum verkstjóra varðandi vinnu og vinnuumhverfi. Þekking á vinnuverndarmálum, tækifæri til að bæta hjá sér vinnuumhverfið og fækka slysum og veikindadögum.

Lengd

Undirbúningur heima eða á vinnustað og 2 klst. á Teams fundi eða í kennslustofu.

Dagsetningar

Námskeiðið er haldið reglulega, bæði í Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ, í húsnæði Rafmennt, Stórhöfða 27 í Reykjavík og í fjarnámi. Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningar þegar væntanleg námskeið hafa verið dagsett. Næstu námskeið eru sem hér segir:

  • Þriðjudaginn, 20. apríl, kl. 13-15 í fjarnámi

Verð, nánari upplýsingar og skráning

Námskeiðið kostar 11.900 kr. Innifalið eru öll námsgögn, aðgangur að kennslukerfi og fyrirlestrum, ásamt vinnu í fjarfundi í Teams.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kjerúlf, forstöðumaður Vinnuverndarskóla Íslands. Áður en námskeiðið hefst verður opnað fyrir aðgang þátttakenda að kennslukerfi og fyrirlestrum á netinu, og er ætlast til að þátttakendur hafi kynnt sér efnið áður en farið verður í kennslustofu.

Skráning á námskeið