Fara í efni

Upplýsingar til nemenda Íþróttaakademíunnar vegna samkomubanns

Vegna samkomubanns á Íslandi sökum COVID-19 mun engin kennsla fara fram í húsnæði Keilis frá og með miðnætti 16. mars til mánudagsins 13. apríl að öllu óbreyttu.

Húsnæðið verður með öllu lokað fyrir nemendur og starfsemi innandyra verður í lágmarki. Starfsfólk mun þó sinna allri þeirri vinnu sem þarf til að halda skólastarfi gangandi.

Vegna þessa mun kennsla hjá Íþróttaakademíu skerðast að einhverju leiti en mismikið eftir námsbrautum. Allar staðlotur munu falla niður á meðan lokun stendur en nemendur munu fá upplýsingar um uppfærðar dagsetningar staðlotna þegar hægt verður að ákveða slíkt.

Kennsla áfanga sem eru samkvæmt dagskrá kenndir að fullu á netinu, mun haldast óbreytt innan allra námsbrauta.

Nemendur eru hvattir til að nýta rafrænar þjónustuleiðir Keilis svo sem heimasíðu, tölvupóst, Moodle og Teams þar sem við verður komið.

Á þessum tímum er jafnvel enn meiri ástæða til að nýta sér þjónustu námsráðgjafanna og eru þeir sannarlega til þjónustu reiðubúnir að aðstoða við hvað sem er. Þið getið fundið flýtileið á heimasíðunni til nálgast þá en þau eru Þóra (thora@keilir.net) og Skúli (skuli.b@keilir.net)

Endilega nýtið ykkur þær rafrænu þjónustuleiðir sem eru í boði til að hafa samband við annað starfsfólks skólans einnig og eftir því sem við á.

Gangi ykkur sem allra best og ef það vakna einhverjar spurningar þá ekki hika við að hafa samband við forstöðumann deildarinnar, Arnar Hafsteinsson (arnar@keilir.net)

Arnar Hafsteinsson,
forstöðumaður Íþróttaakademíu Keilis