Miklar framfarir hafa náðst síðustu áratugi í efnislegu og tæknilegu öryggi á vinnustöðum t.d. við hönnun vinnustaða, véla og tækja. Til þess að ná lengra í öryggismálum og fækka vinnuslysum enn frekar þarf að beita nýjum aðferðum.
Það þarf að skoða sálræna og félaglega þætti í samspili við vinnuskipulag og vinnuumhverfi.
Á þessu námskeiði er gerð grein fyrir því hvernig hægt er að innleiða öryggismenningu á vinnustað, þ.e. breyta hugsun og hegðun starfsmanna og stjórnenda til langs tíma. Efnið er byggt á sænskri aðferðafræði sem kallast Byggt á öryggi en gefin var út bæklingur árið 2009 með sama heiti. Hugmyndafræði Safety II verður einnig kynnt.
Uppbygging
Námskeið Vinnuverndarskóla Íslands byggjast upp á vendinámi. Þegar nemendur skrá sig á námskeiðið fá þeir senda fyrirlestra og lesefni sem þeir kynna sér áður en þeir koma í kennslustofu. Nemendur mæta undirbúnir í kennslustofu. Þar byrjar kennari á því að fara stuttlega yfir aðalatriði efnisins, svo eru umræður og unnin verða verkefni.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er hugsað fyrir lengra komna í vinnuverndarmálum, t.d. öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði, verkstjóra og stjórnendur. Gert er ráð fyrir því að nemendur þekki hlutverk öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða og kunni góð skil á áhættumati.
Ávinningur
Þátttakendur kynnast nýrri hugmyndafræði til að auka öryggi á vinnustaðnum og fækka vinnuslysum.
Lengd
Undirbúningur heima eða á vinnustað og 2 klst. í kennslustofu.
Dagsetningar
Námskeiðið er haldið reglulega, bæði í Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ og í húsnæði Rafmennt, Stórhöfða 27 í Reykjavík. Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningar þegar væntanleg námskeið hafa verið dagsett.
Verð, nánari upplýsingar og skráning
Námskeiðið kostar 11.900 kr. Innifalið eru öll námsgögn, aðgangur að kennslukerfi og fyrirlestrum, ásamt vinnu í kennslustofu.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kjerúlf, forstöðumaður Vinnuverndarskóla Íslands. Áður en námskeiðið hefst verður opnað fyrir aðgang þátttakenda að kennslukerfi og fyrirlestrum á netinu, og er ætlast til að þátttakendur hafi kynnt sér efnið áður en farið verður í kennslustofu.