ÍAK einkaþjálfaranám Keilis hefst næst í ágúst 2020. Námið er vottað af Europe Active á fjórða þrepi samkvæmt reglum Evrópusambandsins og fá útskrifaðir ÍAK einkaþjálfarar skráningu í EREPS gagnagrunn stofnunarinnar.
ÍAK einkaþjálfaranámið er ítarlegasta einkaþjálfaranámið sem er í boði á Íslandi og hafa nú um 800 nemendur lokið náminu.
Námið er viðurkennt af menntamálaráðuneytinu sem starfsnám á þriðja hæfniþrepi og miðast við að skila nemendum tilbúnum til starfa við þjálfun og því er mikil áhersla lögð á að tengja fræðina við verklega kennslu og atvinnulífið.
Námið er í heild 180 feiningar en 80 feiningar sérgreinar einkaþjálfaranámsins eru kenndar hér í Keili á tveimur önnum. Að námi loknu öðlast útskriftarnemendur viðurkenninguna ÍAK Einkaþjálfari frá Íþróttaakademíu Keilis.
ÍAK einkaþjálfaranámið er vottað af Europe Active á fjórða þrepi samkvæmt reglum Evrópusambandsins (Level 4 Personal Trainer) og fá útskrifaðir ÍAK einkaþjálfarar skráningu í EREPS (European Register of Exercise Professionals) gagnagrunn stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur fyrir nám á haustönn 2020 er til föstudagsins 15. maí næstkomandi.