Fara í efni

Einkaþjálfaranám á ensku hefst 22. febrúar

Dagný Brynjarsdóttir lauk í NPTC einkaþjálfaranámi og hélt síðar áfram í ÍAK styrktarþjálfaranám Kei…
Dagný Brynjarsdóttir lauk í NPTC einkaþjálfaranámi og hélt síðar áfram í ÍAK styrktarþjálfaranám Keilis

NPTC (Nordic Personal Trainer Certificate) er einkaþjálfaranám á ensku í fullu fjarnámi á vegum Íþróttaakademíu Keilis. Það hentar þannig bæði á erlendum markaði sem og þeim sem vilja stunda einkaþjálfaranám samhliða vinnu. Næsta námskeið hefst 22. febrúar.

Hægt er að byrja í NPTC náminu sex sinnum á ári og tekur það 6-8 mánuði allt eftir hraða nemandans. Hver áfangi tekur sjö vikur og hefur nemandinn aðgang að öllum kennslumyndböndum á meðan áfanginn er opinn. Það hentar vel í verklegri kennslu þar sem nemandinn hefur tækifæri til að fara mun dýpra í námsefni áfanganna í samanburði við staðnám, þar sem tíminn takmarkast við staðlotur.

Nánari upplýsingar um NPTC námið má finna hér.